Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 100
33. þing ASÍ. Þingskjal 63.
Ályktun um lífeyrismál.
33. þing ASl telur, að meðal mikilvægustu réttinda, sem verka-
lýðshreyfingin hefur áunnið sér á síðustu árum, séu lífeyrisréttind-
in. En þrátt fyrir mikilsverðan áfanga á þessu sviði, skortir mjög á,
að lífeyrisréttindi hins almenna tryggingakerfis og lífeyrissjóðanna
veiti viðunandi elli- og örorkulífeyri. Þörf er skjótra breytinga til
hins betra. Leggur þingið því áherslu á, að endurskipulagningu líf-
eyriskerfisins verði hraðað svo sem kostur er, eins og ákveðið var
með kjarasamningunum í febrúar 1976.
Þingið telur, að meginmarkmið endurskipulagningarinnar skuli
vera þessi:
Að samfellt lífeyriskerfi taki til allra landsmanna.
Að stefna beri að því, að lífeyrisþegar fái sem jafnastar greiðslur.
Að verkafólk öðlist rétt til verðtryggðs lífeyris, er fullnægi þörfum
lífeyrisþega á hverjum tíma.
Að full eftirlaun og ellilífeyrir miðist við 65 ára aldur.
Að hlutur einhleypinga í hinu almenna tryggingakerfi verði bætt-
ur sérstaklega frá því sem nú er, svo og að hlutur maka látinna fé-
lagsmanna í stéttarfélögum, er létust fyrir 1970, verði bættur sér-
staklega.
Að skerðingarákvæði verði ekki beitt á tekjutryggingu vegna þeirra
lífeyrisgreiðslna, sem eftirlaun aldraðra og lífeyrissjóðir verkalýðs-
félaganna greiða.
33. þing ASÍ. Þingskjal 64.
Ályktun um frœðslu og menningarmól.
33. þing ASÍ ályktar, að á sl. fjórum árum hafi mörg veigamikil
skref verið stigin í fræðslustarfi verkalýðshreyfingarinnar. Má þar
fyrst og fremst nefna starfsemi MFA og þau tengsl og samstarf i
fræðslustarfi, sem tekist hefur milli þess og verkalýðsfélaganna með
námskeiðum, fræðsluhópum og öðru fræðslu- og menningarstarfi.
í því sambandi má nefna:
96