Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 12
uppistöðu blautFiskur og tros. og styrjöld hafði geisað um 2ja ára
skeið. Dýrtíð óx úr öllu valdi, en kaupgjaldi var haldið niðri með
harðri hendi í 3 krónum á dag fyrir karla og V/2 krónu fyrir konur,
en vinnutíminn í landi frá kl. 6 að morgni til kl. 8 að kveldi og á
sjónum var vinnutíminn ótakmarkaður, hvíldin iðulega aðeins ein
klst. á sólarhring, eða að þeim mörkum, er menn hnigu úrvinda
niður. Á sama tíma safnaðist auður á fárra hendur, meðan örbirgðin
óx að sama skapi.
Tímabil stéttaandstæðna og stéttabaráttu var hafið og á réttri
stundu í rás tímans komu fram réttir menn til þess að leiða baráttuna
í broddi fylkingar þeirra ónafngreindu hetja, sem voru reiðubúnar,
mitt í örbirgð sinni og umkomuleysi, að veita foringjum sínum atfylgi
sitt og fórna hverju sem var fyrir þær hugsjónir, sem þeir voru sann-
færðir um, að fyrr eða síðar hlytu að sigra. Á þessari stundu hyllum
við eldhugana, sem hófu merk sigrandi verkalýðshreyfingar á loft á
árinu 1916, og jafnframt alla þá, sem allar götur síðan, hafa haldið
því á lofti og reynst trúir liðsmenn, hvort sem sagan geymir nöfn
þeirra eða ekki.
Islensk verkalýðshreyfing á þessum mönnum lífs og liðnum ómæl-
anlega þakkarskuld að gjalda. íslenska þjóðin öll hið sama, því án
verkalýðssamtakanna og alls þess, sem þau hafa til leiðar komið, væri
Island ekki það land, sem það er í dag, og hér væri þá ekki heldur
lifað þjóðlífi, sem, þrátt fyrir alla annmarka sína, hefur þróast á þann
veg, að raunveruleg aldaskil hafa orðið, að miklu og mestu fyrir bar-
áttu verkalýðshreyfingarinnar og hennar bestu manna á síðustu 60
árum.
Hér verður engin sagnfræði rakin, en hver sem rennir huga að
þjóðlífinu fyrir sex áratugum, og þess, sem nú er lifað, hlýtur að sjá
og skilja, betur en ófullkomin orð fá skýrt, þá þjóðlífsbyltingu, sem
á þessum tíma hefur orðið.
En það mikla og stóra, sem áunnist hefur, á ekki að valda því, að
slakað sé á baráttu hreyfingarinnar, heldur miklu fremur því að
hvetja okkur öll — allan hópinn — sem á 6 áratugum hefur fjölgað
úr 650 manna liðsafla ASl á stofnfundi þess í þau 47 þúsund, sem
nú standa undir merkjunum, til þess að halda fána frumherjanna
hátt á lofti og sækja fram einhuga og sameinaðir í óumflýjanlegri
hagsmunabaráttu alþýðustéttarinnar, í baráttunni fyrir frelsi, jafn-
8