Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 25
læra að fylgja settum reglum áætlanagerðar, sem sýna vilja mikils
meirahluta fólksins. Og þetta stóra hlutfall, í öllum löndum okk-
ar, er skipað verkamönnum og fjölskyldum þeirra, sem cru bæði
í senn, framleiðendur og neytendur.
2. Þá erum viS komin að öSru atriSi málsins: nefnilega aukningu
lýðræðisins á öllum sviðum þjóðlífsins.
Það er ástæða til að undirstrika það enn einu sinni að við erum
fylgjandi stjórnmálalegu lýðræði af sannfæringu. Þetta er ástæðan
fyrr því að við erurn fylgjandi almennum og beinum kosningum
til Evrópuþingsins. En við erum, og munum alltaf vera, sannfærðir
um að stjórnmálalegt lýðræði — hversu vel liugsað sem það kynni að
vera — er ekki framkvæmanlegt, nema til komi útbreitt efnahags-
Egt lýðræði.
Samfara eflingu Evrópuþingsins, verður að endurbæta og endur-
byggja allar þær stofnanir, sem verkamenn taka þátt í og eiga full-
trua í. £g á bér fyrst og fremst við Efnahags- og félagsmalanefndina
°g ýmsar undirnefndir hennar og alveg sérstaklega Fastanefndina
um efnabagsmál. Og við verðum að þróa áfram sameiginlega félags-
vitund í þeirn löndum, sem eiga aðild að EVS.
Samt sem áður, þá verðum við að gera okkur grein fyrir þvi, að
ef við viljum koma lýðræðinu til áhrifa, þá má það ekki staðnæmast
við verksmiðjuhliðið. Á hinn bóginn, og ofar öllu, þa verða verka-
menn að vera þess umkomnir að ná raunverulegum áhrifum 1 þeim
málum, er varða framtíð þeirra fyrirtækja, sem þeir vinna í.
Eað er staðreynd, og kominn er tími til að við gerum okkur
grein fyrir því að verkamenn oft á tíðum bera hag þess fyrirtækis,
sem þeir vinna hjá, jafnvel meira fyrir brjósti, sem um ÞEIRRA
eigið fyrirtæki væri að ræða, en eigendur þeirra.
Eað eru ekki til nein rök fyrir því, hvers vegna þcim er meinað
um þátttöku, þegar vandamál varðandi framtíð fyrirtækisins eru
rædd.
Áð lokum, aðalmarkmið okkar er krafan um betra mannhf öllum
El banda. Ég tek vísvitandi svona til orða, vegna þess að bræður
°kkar a Norður-Irlandi hafa nýlega hafið fjöldabarattu undir þessu
björorði.
Elér er um að ræða sannfæringu um, að einungis mannsæmandi
21