Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 34
sem unnt er að ná innan tvöhundruð mílna fiskveiðimarka, þá er
landgrunn Færeyja lítið og fiskmagnið er takmarkað. Af þessu leið-
ir, að fiskveiðar Færeyja hafa verið að nreginhluta til á fjarlægum
miðum. Síðasta ár var 75% af aflanum veiddur innan komandi 200
mílna marka annarra þjóða. Okkar fiskveiðifloti er auk þess byggður
fyrir fiskveiðar á fjarlægum miðum, og þess vegna veldur það okkur
miklum erfiðleikum, þegar réttur okkar til veiða á fjarlægum miðum
fer stórlega minnkandi á næsta ári. Það mesta, sem við getum reikn-
að með að veiða innan okkar 200 mílna fiskveiðilögsögu, svarar
kannski til núverandi útflutningsverðmæta. Svo eru flestir færey-
ingar sannfærðir um, að það þurfi að breyta stórum hluta af núver-
andi fiskiflota, áður en við getum búist við að geta fengið fulla nýt-
ingu á þeim fiskistofni, sem nú er á okkar landgrunni. Og því erum
við í erfiðri aðstöðu, ef við verðum útilokaðir frá fiskveiðum á fjar-
lægum miðum. Við höfum þó þá trú, að það séu margir, sem skilja
afstöðu okkar, og ég get fyrst nefnt, að við höfum fiskveiðisamning
við ísland, sem hefur mikla þýðingu fyrir okkur. Veiðar okkar við
Island hafa mjög rnikla þýðingu fyrir frystihús okkar. Við vonum
þó, að þegar fiskistofnar við Island verða orðnir öflugri, þá getum
við fengið fiskveiðikvóta okkar hækkaðan. Eg skal taka það fram,
að frá 1. janúar verða fiskveiðimöguleikar kraftblakkarbáta okkar
mjög takmarkaðir. Þess vegna mundi það koma sér mjög vel, ef við
fengjum á næsta ári leyfi til að veiða loðnu við ísland. Ég get nefnt,
að hjá vissum æðri aðilum er nokkur skilningur á erfiðleikum okk-
ar. Og í sumar var fundur hjá útvegsbændum hjá Alþjóðaflutninga-
verkamannasambandinu, þar sem bæði færeyingar og íslendingar eru
aðilar, og þar var gerð samþykkt, sem segir, að strandríki skuli í
framtíðinni sameinast um verndun fiskistofna innan komandi 200
mílna lögsögu. Á sérstaklega að hugsa um þau lönd og ríki, sem
eingöngu hafa fiskveiðar sér til framdráttar. En við vonum, að við
verðum færir um að yfirstíga alla þá erfiðleika, sem að okkur steðja,
því hversu mikið sem talað er um aukna fjölbreytni í atvinnulífinu,
er það grundvallarstaðreynd, að í Færeyjum höfum við ekki annað
en fiskveiðar okkur til framdráttar. Að lokum vil ég nota tækifærið
til að segja ykkur á 60 ára afmæli Alþýðusambandsins, að við í
F0roya Fiskimannafelag erum ánægðir með það samband, sem við
höfum við íslensku verkalýðshreyfinguna. Því er mér það sérstök
30