Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 13

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 13
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 13 Hvernig upplifun var að vera valin maður ársins og breytti það einhverju fyrir þig? Nei, nei það breytti engu fyrir mig og ég segi að þetta sé heilbrigðisstarfsmaðurinn og COVID-19 stríðsmaðurinn sem hafi fengið þessa viðurkenningu. Kom valið þér á óvart? Já, algjörlega. Mikil fjölmiðlaumfjöllun hefur verið í kringum verkefni heilsugæslunnar í faraldrinum, bæði sýnatökurnar og bólusetningarnar. Í stefnu- mótunarvinnu árið 2019 vildum við, meðal annars, bæta ímynd heilsugæslunnar. Stefna okkar var að koma fram í fjölmiðlum með jákvæða umfjöllun um heilsugæsluna og við settum okkur nokkur markmið: Að ræða alltaf um hvað við værum að gera í stað þess að ræða um það sem við værum ekki að gera eða gætum ekki gert, hafa umræðuna jákvæða. Að kynna heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað og að fólk væri velkomið og reyna almennt að tala heilsugæsluna upp. Við settum okkur það markmið að við færum ekki í fjölmiðla til að kvarta og kveina. Það var alveg meðvitað. Við gætum farið í ráðuneytið ef okkur vantaði eitthvað og með athugasemdir, kvart og kvein en það ætti ekki heima í eyrum almennings. Maður þarf að vera meðvitaður um við hvern maður er að tala þegar talað er í fjölmiðlum. Ég ætla ekki að tala við stjórnvöld í gegnum fjölmiðla, um að það vanti peninga eða eitthvað annað. Það á ekki heima í fjölmiðlum eða í eyrum almennings á svona tímum. Almenningur þarf að heyra, og þá sérstaklega í svona kreppu, að það gangi vel, að við ráðum við hlutina, að við getum þetta og að við séum hér fyrir þig. En það er einmitt slagorð heilsugæslunnar: „Við erum hér fyrir þig“ og frá byrjun vorum við meðvituð um hvernig við vildum fara í umræðuna. Leiðarljósið var alltaf: „Við erum hér fyrir þig“. Þegar við vorum að byrja að bólusetja komu upp miklar pælingar hvort það ætti að útiloka fjölmiðla en það voru alveg skýr skilaboð, líka frá forstjóra, að taka fjölmiðlum alltaf vel, vera jákvæð og hafa þá með okkur í liði. Ég held að það hafi jafnvel verið stór þáttur í því að við vorum valin maður ársins því við fengum líka að heyra það frá fjölmiðlafólki að það væri alltaf hægt að ná í okkur og að við værum alltaf jákvæð og viljug að segja frá, ég held að það hafi spilað inn í. Samskipti við fjölmiðla hafa verið alveg gríðarlega mikil, þetta eru örugglega 10-20 símtöl á dag við fjölmiðla og þegar eitthvað er í gangi þá gerir maður ekkert annað en að svara þeim. Ég spurði eina fjölmiðlakonuna einu sinni hvers vegna fjölmiðlar sýndu þessu svona mikinn áhuga, þetta væru jú bara sýnatökur eða bólusetningar. Þá lýsti hún þessu svo skemmtilega þegar hún sagði: „Þetta snertir okkur öll og við erum öll að bíða eftir okkar skammti.“ Þetta hjálpaði okkur að skilja betur, það var allt samfélagið að bíða eftir sínum skammti. Hver var erfiðasta faglega áskorunin í þessum heimsfaraldri? Það var að manna, að fá starfsfólk og að halda öllum gangandi og á tánum. Það er búið að vera ofboðslegt álag á mjög mörgu starfsfólki og þetta getur verið lýjandi og slítandi. Margir eru jafnvel með áfallastreituröskun eftir að hafa verið undir svona Viðtal „Ég ákvað að slá til og ég sé alls ekki eftir því, þessi ár hjá heilsugæslunni hafa verið mjög skemmtileg og ég sá strax að þar voru fjölmörg tækifæri.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.