Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 15
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 15 stórum viðburðum og komu inn í verkefnið þegar aðgerðarstjórn Almannavarna var virkjuð hér á höfuðborgarsvæðinu. Við byrjuðum í anddyrinu og fórum svo yfir í stóra salinn og þá fer þessi stóra maskína í gang. Jákvæðni almennings skipti líka miklu máli, þessi góða stemning þó að fólk þyrfti að bíða í löngum röðum. Ég held að það hafi lagt tóninn þegar elsta kynslóðin, 90 ára og eldri, byrjaði að koma og mætti spariklædd. Konurnar svo flottar, búnar að fara í lagningu og klæða sig upp á, í pils, háa hæla og pels. Þetta var gaman og hátíðlegt, svolítið eins og „reunion“ því þarna voru árgangar að hittast og það þekktu allir einhverja. Hvað hefði mátt betur fara í heilbrigðiskerfinu ef við gætum spólað tvö ár aftur í tímann? Ég held að við höfum verið ótrúlega heppin með hvað þetta gekk allt vel upp. Ég er alla vega ekki komin á þann stað enn þá að sjá hvað við hefðum átt að gera öðruvísi. Ég held líka að það hafi verið gæfuspor að við tókum nær strax öll helstu COVID-verkefnin út af heilsugæslustöðvunum. Sýnatökurnar voru á heilsugæslustöðvunum til að byrja með og það var mjög íþyngjandi fyrir aðra starfsemi að hafa þær þar. Það var ekki fyrr en við fórum í Keflavík og tókum að okkur sýnatökur við landamærin að við fengum verktaka til að sinna því. Það var gagnrýnt í upphafi en guði sé lof að við gerðum það, annars hefði allt okkar fagfólk verið í því að taka sýni alla daga. Þegar við vorum komin með verktaka í sýnatökurnar og mjög gott sjálfvirknivætt kerfi sáum við að færa þurfti „Það er alveg frábært hvað margir hjúkrunarfræðingar sem eru orðnir lífeyrisþegar hafa komið til að taka þátt í þessu með okkur. “ sýnatökurnar af heilsugæslustöðvunum og hafa þær á einum stað. Þegar svo var farið að bólusetja hefði líka verið eðlilegast að gera það á heilsugæslustöðvunum en þá kom þessi hugsun upp að fría stöðvarnar svo þær gætu haldið sinni starfsemi áfram. Það var stefnan og ég held að það hafi verið gæfuspor. Við höfum samt þurft að taka einhverja hjúkrunarfræðinga af stöðvunum til að sinna COVID- tengdum verkefnum en við erum líka með tímavinnufólk og fleiri sem komið hafa að þessu. Það er alveg frábært hvað margir hjúkrunarfræðingar sem eru orðnir lífeyrisþegar hafa komið til að taka þátt í þessu með okkur. Hjúkrunarfræðingar komu úr öllum áttum, úr einkageiranum, ráðuneytum, Embætti landlæknis, Tryggingastofnun, Landspítalanum, hjúkrunarheimilum og félaginu okkar. Allir lögðust á eitt. Er faraldurinn á undanhaldi? Já, eigum við ekki að segja það. Fjórða sprautan hefur nú verið í umræðunni eða hvort það eigi að bíða með hana. Það er ekkert vitað hver þróunin verður, eða hvort það komi alltaf ný afbrigði. Spurningin er því frekar hvernig við ætlum að ná stjórn á þessu, með reglulegum bólusetningum eins og inflúensubólusetningum eða hvort þetta fari jafnvel inn í inflúensubólusetninguna. Ég held að veiran verði áfram en vonandi vægari eins og hún er núna með ómíkron. Viðtal Ræningjarnir úr Kardimommubænum mættu í Laugardalshöll þegar bólusetningar barna hófust.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.