Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 25
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 25
Viðtal
gjörólíkar, þá var kuldinn ekki erfiðasta áskorunin heldur hiti
og fíngerður sandur en hlaupið var í eyðimörk í Abu Dhabi í 30
stiga hita,“ segir hún og þá leikur okkur forvitni á að vita hvort
kuldinn eða hitinn hafi hentað íslensku hlaupakonunni betur?
,,Ég vann í kuldanum en hef samt enga afsökun fyrir því að hafa
ekki sigrað líka í hitanum því ég var búin að undirbúa mig mjög
vel. Ég hljóp til að mynda í snjó til að undirbúa mig fyrir sandinn
og æfði svo inni í svitagalla sem andar ekki með alla ofna í botni
til að undirbúa mig undir hitann. Það kom mér samt á óvart
hvað það er rosalega erfitt að hlaupa í eyðimerkursandi, það er
eins og að hlaupa í hveiti því sandurinn er svo fíngerður. Skórnir
mínir fylltust af sandi, þrátt fyrir sérstakar skóhlífar, táneglurnar
krömdust og duttu svo af ein af annarri. Sama hvað ég reyndi þá
gat ég ekki, frekar en aðrir, hlaupið hratt í sandinum, ég er yfirleitt
rúma þrjá tíma að hlaupa þessa vegalengd en ég var tæpa fimm
tíma í Abu Dhabi-eyðimörkinni.“
Margir keppendur gáfust upp
„Strax í upphafi hlaupsins þegar ég var búin að hlaupa nokkra
kílómetra gerði ég mér grein fyrir því að ég yrði miklu lengur að
klára þetta. Það er einmitt þessi óvissa og breytileiki á aðstæðum
sem mér finnst svo heillandi. Þetta er ekki bara líkamlega erfitt
heldur líka gífurleg andleg áskorun. Maður er í gegnum allt
hlaupið að tala við sjálfan sig, endurmeta, breyta áætlun og
aðlagast aðstæðum hverju sinni. Ég mætti vel undirbúin, var með
næga orku og steinefni sem er það allra mikilvægasta við þessar
aðstæður. Ég gerði ekki ráð fyrir því að vera svona lengi úti í
sólinni og hitanum en sem betur fer hafði ég tekið með mér nægar
birgðir og lenti ekki í neinum vandræðum. Það eru vatnsstöðvar
í brautinni en maður þarf að bera alla orku með sér. Margir
keppendur lentu í vandræðum og gáfust upp en ég kláraði hlaupið
og náði öðru sætinu,“ segir Óla ágætlega sátt þótt hún viðurkenni
að það sé meira gaman að landa gulli en silfri. En hún er ekki hætt,
segist vera farin að skoða næstu hlaup og vafalaust á hún eftir að
koma heim með fleiri gullpeninga.
Fór með hlaupahóp til Dallas
Óla segir aðspurð ekkert Spartan Race-hlaupasamfélag vera til hér
á landi, þessi íþrótt njóti meiri vinsælda í öðrum löndum. ,,Þetta er
risastórt batterí og á heimasíðunni spartan.com geta áhugasamir
kynnt sér þetta nánar, til að mynda er keppt í aldursflokkum,
eins og ég geri, en svo eru líka atvinnumannaflokkar þar sem
keppendur safna stigum yfir tímabil og til að átta sig á umfanginu
má nefna að á heimsmeistaramótinu 2019 voru 10-12 þúsund
keppendur,“ útskýrir hún og eflaust eiga fleiri íslenskir hlauparar
eftir að bætast við Spartan-hlaupasamfélagið í framtíðinni. Óla
hefur lagt sitt af mörkum til að vekja áhuga á íþróttinni hérlendis,
en árið 2018 skipulagði hún ferð til Dallas þangað sem hún fór
með 50 manna hóp. ,,Við vorum í Dallas í fimm daga og allir
kepptu, flestir fóru 21 km en nokkrir hlupu 42 km. Fórum síðan
aftur 2019 til Killington í Vermont en þar er ein erfiðasta Spartan-
brautin.“
Óla hefur verið með átta vikna sumarnámskeið þar sem hún lagði
áherslu á að kenna fólki tæknileg atriði til að takast á við ólíkar
hindranir og segir aldrei að vita hvort það verði haldið eitt slíkt
á komandi sumri. Áhugasamir geta sent henni skilboð í gegnum
Instagram, en hana er að finna undir nafninu olakvaran.