Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 26
26 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Viðtal
Borðar hreint fæði en getur ekki sagt nei við rjómaís
Óla segir mataræðið skipta sig miklu máli: ,,Ég borða mikið og ég
borða flest en mest hreint fæði í sinni upprunalegustu mynd. Ég
fylgi engu ákveðnu mataræði en borða helst ekki unnar matvörur
og ekki sykurbættar mjólkurvörur. Ég verð samt að játa að ég get
aldrei sagt nei við rjómaís og á alltaf til rjómaís í frysti en ég læt
hann vera í fjórar vikur fyrir keppni,“ segir hún brosandi og bætir
við að hún taki líka bætiefni og nefnir sérstaklega astaxanthin og
Unbroken; ,,Hvort tveggja eru íslensk vörumerki. Astaxanthin er
andoxunarefni unnið úr örþörungum og Unbroken er unnið úr
ferskum laxi og er vöðvanæring sem flýtir líka fyrir endurheimt
og styður við ónæmiskerfið. Fyrir mig er góð endurheimt
lykilatriði og ég viðurkenni að eftir því sem maður verður eldri því
mikilvægari er hún,“ segir hún og hlær innilega.
Ákveðin hugleiðsla að hlaupa ein úti
Óla segist alla tíð hafa hreyft sig mikið: ,,Ég æfði alla tíð íþróttir
sem krakki og er með mikið keppnisskap en ég var lengst í
handbolta, hætti þegar ég var 25 ára og yngsti sonur minn eins
árs. Næstu árin hafði svo annað í lífinu forgang; skóli, vinna og
barnauppeldi en við hjónin eignuðumst þrjá syni á sjö árum. Þegar
ég var 34 ára fluttum við til Bretlands og vorum þar í þrjú ár. Þegar
við fluttum aftur heim byrjaði ég aftur að hreyfa mig af krafti, ég
ákvað þá að prófa Boot Camp og fann mig strax í því. Boot Camp
fer vel saman með hlaupunum, styrkur, snerpa og þol. Hlaupin
mín eru flest utanvegar og ég hleyp mest ein. Fyrir mig er það
ákveðin hugleiðsa að hlaupa ein, mér finnst það gott.“
Óla er hjúkrunarfræðingur, hugsar vel um heilsuna og hreyfir
sig mikið, en hvað með svefninn, hversu mikilvægur er hann?
,,Hlaupin mín eru flest alltaf
utanvegar og ég hleyp mest
ein. Fyrir mig er það ákveðin
hugleiðsa að hlaupa ein, mér
finnst það gott.“
Ólafía ásamt fjölskyldu sinni