Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 40
40 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 Ótrúleg fagmennska flutningsteymisins í viðkvæmum aðstæðum Theódóra Kolbrún Jónsdóttir er hjúkrunarfræðingur á Vökudeild Landspítala. Hún og eiginmaður hennar, Ágúst Bent Jensson, eiga þrjú börn og þegar yngsta barn þeirra, sonurinn Theódór Bent, fæddist með hjartagalla þurftu þau að fara með hann til Svíþjóðar í stóra opna hjartaaðgerð. Flutningsteymi Vökudeildarinnar sá um að flytja drenginn þeirra á nýburagjörgæsluna í Lundi og reyndist foreldrunum ómetanlegur stuðningur á erfiðum tíma. Við fengum Theódóru til að segja okkur frá sinni upplifun af þessari lífsreynslu. „Theódór Bent fæddist í febrúar 2021 en strax á 28 viku meðgöngu greindist hann með alvarlegan hjartagalla; þrengingu á ósæðarboga og vinstri slegillinn var rýrður. Það var strax vitað að hann þyrfti að fara út í stóra, opna hjartaaðgerð fljótt eftir fæðingu,“ segir Theódóra. Litli drengurinn fæddist á fimmtudegi og fór þá strax á Vökudeildina í lyfjagjöf til þess að halda fósturæðinni opinni. „Við fórum svo út á mánudagsmorgun þegar hann var fjögurra daga gamall. Flugum til Kaupmannahafnar og þaðan fór hann í sjúkrabíl til Lundar þar sem hann fór í hjartaðargerðina,“ segir Theódóra. Hún segir að þau Ágúst hafi verið undirbúin undir það sem var í vændum að einhverju leyti þar sem þau vissu af hjartagallanum strax á meðgöngu. „Eftir að hann fæddist vorum við strax gripin af starfsfólki Vökudeildarinnar og flutningsteyminu. Þau sáu um alla pappírsvinnu eins og að útvega flugmiða, vegabréf fyrir hann og annað. Það eina sem við þurftum að hugsa um var að vera hjá honum. Flutningurinn gekk ótrúlega vel, hann fór í sjúkrabíl í hitakassa í fylgd hjúkrunarfræðings og læknis, upp á Keflavíkurflugvöll og við fylgdum eftir í leigubíl með tóman barnabílstól með okkur sem var sérstök upplifun. Við hittum svo hann og teymið þegar við komum inn í vélina. Texti: Sigríður Elín Ásmundsdóttir | Myndir: Úr einkasafni Hjúkrunarfræðingur og læknir sátu fyrir framan hitakassann og fylgdust með lífsmörkum allan tímann og brugðust við öllum breytingum. Súrefnismettunin lækkar alltaf í flugi en við foreldrarnir urðum aldrei vör við að neitt væri að því þau brugðust svo fagmannlega við öllum breytingum hjá honum. Björk Áskelsdóttir hjúkrunarfræðingur var með góða yfirsýn yfir allt í fluginu sem veitti okkur mikið öryggi. Það var svo mikilvægt fyrir mig sem móður að sjá hvað það var vel hugsað um hann og hvað honum leið vel. Ég gat mjólkað mig og hann fékk síðan mjólkina beint í magann í gegnum næringarsondu. Ég viðurkenni að það er óneitanlega svolítið súrrealískt að upplifa þetta fjórum dögum eftir fæðingu, að vera allt í einu á hliðarlínunni að fylgjast með barninu sínu í þessum aðstæðum. Ég mjólkaði mig þarna í vélinni og á sama tíma aftar í vélinni var fólk að skála. En honum leið vel í fluginu, svaf mikið og drakk, það var hugsað fyrir öllu og þetta var því ekki eins dramatísk og við foreldrarnir bjuggumst við. En ég upplifði sterkt hvað ég var stödd á röngum stað, verandi nýbúin að fæða barn og mætt í flugstöðina í miðjum heimsfaraldri með tóman barnabílstól, segir hún einlæg og þakklát fyrir hvað allt gekk samt vel. Hvernig var upplifun ykkar foreldrana af flutningsteyminu og ferðalaginu til Svíþjóðar? „Mjög góð, það var ótrúlega fagmannlega að öllu staðið. Björk Áskelsdóttir hjúkrunarfræðingur og Hrólfur Farteymi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.