Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 44
44 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Betri vinnutími
Samantekt og
staða frá kjara- og
réttindasviði Fíh
Kristjana E. Guðlaugsdóttir,
sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs
Eva Hjörtína Ólafsdóttir,
kjararáðgjafi
Harpa Júlía Sævarsdóttir,
sérfræðingur í kjaramálum
Þann 1. janúar og 1. maí árið 2021 fór af stað verkefnið Betri vinnutími, hjá
dagvinnuhópum annars vegar og vaktavinnuhópum hins vegar. Verkefnið
er ákveðið tilraunaverkefni sem lýst er í Fylgiskjali 1 og 2 sem fylgir
miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Verkefnið tekur til alls starfsfólks hjá ríki,
sveitarfélögum, Reykjarvíkurborg og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Leiðarljós verkefnisins eru öryggi, heilsa og jafnvægi, ásamt því að samræma
betur vinnu og einkalíf. Það er í gildi til 31. mars 2023 samhliða gildistíma
kjarasamninga. Stýrihópur og matshópur launagreiðenda og launþega fylgjast
vel með lykilmælikvörðum verkefnisins, bæði fyrir hönd launþega og stofnanna.
Forsendur verkefnisins eru skýrar. Þetta er breytingarferli sem felur í sér
tækifæri en jafnframt takmarkanir sem þarf og verið er að greina. Verkefnið
hefur vakið athygli annarra þjóða sem fyrirmynd og þáttur sem litið er til sem
áhugaverða nálgun til að mæta því álagi sem faraldur COVID-19 hefur valdið á
vinnumarkaði.
Betri vinnutími í vaktavinnu hófst 1. maí 2021 og var sá tími vissulega áskorun
með sumarið fram undan og alheimsfaraldur í gangi. Kerfisbreytingin var
kynnt hjúkrunarfræðingum á breiðum vettvangi, bæði af verkefnastjórn betri
vinnutíma í vaktavinnu, Starfsmennt, stofnunum og Fíh. Nú líður að því að um
ár sé komið frá þeim tíma og er verkefnið hálfnað. Nauðsynlegt er að hafa í huga
að þetta er umbótaverkefni sem þarf að vera í stöðugri skoðun þar sem um
ákveðið tímabundið tilraunaverkefni er að ræða. Það eru enn að finnast tækifæri
til umbóta og það þarf að endurskoða verkefnið á hverjum stað reglulega og
endurmeta þætti eins og t.d. starfshlutfall og dreifingu vakta. Breytingin hefur
ekki verið fest í sessi og skrifuð inn í kjarasamninga. Þess vegna þarf að greina vel
annamarka verkefnisins sem og tækifærin til þess að það sé hægt að betrumbæta
breytinguna, ef hana á að festa í sessi.
Félagið er ánægt með hvað hjúkrunarfræðingar eru duglegir að láta heyra frá
sér og fundað er reglulega með trúnaðarmönnum hjúkrunarfræðinga um stöðu
verkefnisins. Fleiri tækifæri eru fram undan til þess að ræða þessi mál, sem og
önnur kjaratengd málefni. Fyrirhugaðir eru fundir með hjúkrunarfræðingum vítt
og breytt um landið, könnun verður lögð fyrir hjúkrunarfræðinga á haustdögum og
einnig verður haldin kjararáðstefna í haust en hún verður nánar kynnt í júní útgáfu
Tímarits hjúkrunarfræðinga.
Kjara- og réttindasvið Fíh