Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 46
46 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Allt um orlof
Ávinnsla orlofs
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl. Með starfi
á orlofsárinu ávinnur hjúkrunarfræðingur sér
rétt til orlofs og orlofslauna á næsta orlofsári.
Allir hjúkrunarfræðingar ávinna sér nú 30 daga
sumarorlof. Hjúkrunarfræðingar eiga einnig rétt á að
taka út að lágmarki 15 daga samfellda (alls 3 vikur)
og alls 30 daga orlof á sumarorlofstímabili sem er
1. maí -15. september.
Orlofsfé
Greitt er orlofsfé af álagi og yfirvinnu og lagt inn á
bankareikning viðkomandi. Það er greitt út í maí ár
hvert.
Ákvörðun orlofs
Yfirmaður ákveður, í samráði við hjúkrunarfræðing,
hvenær orlof skuli veitt. Yfirmanni er skylt að verða
við óskum hjúkrunarfræðings um hvenær orlof skuli
veitt, verði því við komið vegna starfsemi stofnunar.
Ákvörðun um sumarorlof skal liggja fyrir 31. mars
og tilkynnt hjúkrunarfræðingi með sannanlegum
hætti, svo sem í tímaskráningarkerfi stofnunar, nema
sérstakar aðstæður hamli.
Tímabil sumarorlofs
Tímabil sumarorlofs er frá 1. maí til 15. september.
Úttekt orlofs
Taka skal orlof fyrir lok orlofsársins, þ.e. fyrir 30. apríl
ár hvert, þó er við sérstakar aðstæður hægt að fresta
töku orlofs um eitt ár. Hjúkrunarfræðingur á rétt til
þess að taka sér sumarfrí óháð því hvort viðkomandi
eigi rétt á launum í orlofi. Komi hjúkrunarfræðingur
úr öðru starfi án þess að hafa þar notið áunnins
orlofs, þá á hann rétt á launalausu orlofi þar til 30
daga orlofi er náð.
Lenging orlofs
Sé orlof eða hluti orlofs tekið utan
sumarorlofstímabils, að beiðni yfirmanns, skal
sá hluti orlofsins lengjast um 25%. Sé það að ósk
hjúkrunarfræðings að geyma töku sumarorlofs
þá kemur ekki til lenging á orlofi teknu utan
sumarorlofstímabils. Ef ekki var unnt að veita fullt
sumarorlof (30 daga) á sumarorlofstímabili sem lýkur
15. september þá er 25% lenging á orlofsdögum
teknum eftir þann tíma. Þessu þarf að fylgjast með
þar sem það er yfirmaður sem tekur afstöðu til
lengingar orlofs hverju sinni.
Kjara- og réttindasvið Fíh
Texti: Harpa Júlía Sævarsdóttir
Nýr orlofskafli tók gildi í júní 2020, um leið og miðlunartillaga ríkissáttasemjara.
Orlofskaflinn er samkvæmt gildandi orlofslögum (https://www.althingi.is/lagas/
nuna/1987030.html). Breytingarnar sem gerðar voru, eru til þess fallnar að stuðla
að tækifærum fólks til að taka orlof á orlofsárinu og rétt til þess að taka fullt
orlof á orlofstíma. Það er því miður algengt að ekki sé hægt að verða við óskum
hjúkrunarfræðinga um að taka fullt orlof á sumarorlofstíma. Því mun orlof sem tekið
er fyrir utan orlofstímann, áfram vera með lengingu, líkt og tiltekið er í orlofslögum og
miðlægum kjarasamningum. Aftur á móti þarf framvegis að liggja fyrir því skrifleg
beiðni yfirmanns.