Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 47
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 47
Frestun orlofs
Flutningur orlofs milli ára er óheimil en þó með
eftirfarandi undantekningum:
Ef hjúkrunarfræðingur tekur ekki orlof eða
hluta af orlofi, að skriflegri beiðni yfirmanns,
getur orlofið geymst til næsta orlofsárs, enda
hafi hjúkrunarfræðingur ekki lokið orlofstöku á
orlofsárinu. Sama gildir um hjúkrunarfræðing í
fæðingarorlofi. Í slíkum tilvikum getur uppsafnað
orlof þó aldrei orðið meira en 60 dagar. Nýti
hjúkrunarfræðingur ekki hina uppsöfnuðu orlofs-
daga, fyrnast þeir. Upplýsingar um stöðu þegar
áunnins og ótekins orlofs skulu vera hjúkrunar-
fræðinig aðgengilegar í tímaskráningarkerfi
stofnunar.
Veikist hjúkrunarfræðingur í orlofi, telst sá tími
ekki til orlofs sem veikindum nemur, enda sanni
hjúkrunarfræðingur með læknisvottorði að hann
geti ekki notið orlofs. Tilkynna skal yfirmanni án
tafar með sannanlegum hætti ef um veikindi eða
slys í orlofi er að ræða. Í slíkum tilvikum er heimilt
að flytja ótekið orlof til næsta árs.
Hjúkrunarfræðingur í veikindum og
hlutaveikindum geta ekki tekið orlof meðan á
þeim stendur og gilda þar aðrar reglur um frestun
á orlofi.
Fyrning orlofs
Önnur breyting á orlofskaflanum varðar reglur um
fyrningu orlofs bæði vegna orlofs sem ekki er tekið
á orlofsárinu sbr. gr. 4.6.1 í kjarasamningum, ásamt
undantekningu um ótekið orlof (gjaldfallið).
Til að koma í veg fyrir að tvær fyrningarreglur væru
í gildi á sama tíma var tekin ákvörðun um að fram
til 30. apríl 2023 verði orlof fyrnt með sama hætti og
verið hefur til þessa:
Hjúkrunarfræðingur getur 1. maí ár hvert mest
átt inni orlof sem nemur einu orlofsári við
upphaf nýs orlofsárs, annað fyrnist. Áunnið og
gjaldfallið orlof getur mest verið tvöfalt, þ.e. það
sem gjaldféll við upphaf yfirstandandi orlofsárs
og frestað gjaldfallið orlof frá árinu á undan (60
dagar). Þetta gildir til 30. apríl 2023.
Fyrning samkvæmt nýjum reglum tekur
gildi 1. maí 2023 og þá verður ekki hægt
að flytja ótekið orlof milli orlofsára nema í
undantekningartilvikum.
Undantekningar eru ef: hjúkrunarfræðingur
frestar orlofi að skriflegri beiðni yfirmanns,
hjúkrunarfræðingur er í fæðingarorlofi,
hjúkrunarfræðingur getur ekki tekið orlof vegna
veikinda. Það orlof sem er verið að ávinna á
yfirstandandi orlofsári og losnar 1. maí n.k. á að
ljúka við að taka á orlofsárinu. Það fyrnist ef það
hefur ekki verið tekið fyrir 30. apríl 2023.
Orlofsuppbót
Orlofsuppbót er greidd út 1. júní ár hvert.
Hjúkrunarfræðingur, sem er í starfi til 30. apríl
þar á undan, eiga að fá orlofsuppbót. Greitt skal
hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Orlofsuppbót árið 2022 er 53.000 kr.
Kjara- og réttindasvið Fíh