Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 49
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 49
,,Að því loknu slökkvum við ljós
á ganginum á deildinni. Það
er gert af virðingu við þann
sem er að skilja við en ekki
síst til að minna starfsfólk og
gesti deildarinnar á að ganga
hljóðlega um.“
Á annarri stofu á að taka sjúkling sem var í opinni hjartaaðgerð fyrr um daginn á
rúmstokk og ég fer til að aðstoða við það. Til þess þarf a.m.k. þrjá starfsmenn þar sem
sjúklingurinn er enn tengdur við hjartarafsjá, vökvadælur og dren svo ekki sé minnst
á að einn og einn sjúkling svimar við fyrstu framúrferð og þá er gott að hafa margar
hendur til stuðnings.
Ég kíki á vaktstjórasímann til að sjá hvort einhver hafi svarað beiðni minni um að koma
á næturvaktina og þá hringir hann. Í símanum er hjúkrunarfræðingur af legudeild
á Hringbrautinni. Fyrr um daginn hafði verið útskrifaður til þeirra sjúklingur af
gjörgæslunni og sú sem hringir vill fá ráðgjöf. Gjörgæsludeildir Landspítala veita
legudeildum á Hringbraut og í Fossvogi formlegan stuðning, meðal annars með eftirliti
með ákveðnum sjúklingum, eftir útskrift af gjörgæslu. Þetta kallast eftirgæsla. Eftirgæsla
er reglubundið mat og eftirlit með sjúklingi sem legið hefur á gjörgæslu í að minnsta
kosti 72 tíma.
Klínískir sérfræðingar í gjörgæsluhjúkrun sinna eftir-gæslu á dagvinnutíma, utan
þess tíma, sinna eftirgæslu annaðhvort vaktstjórar á gjörgæsludeildum eða þeir
hjúkrunarfræðingar sem hjúkruðu viðkomandi í gjörgæslulegunni. Ég þekki sjúklinginn
sem um ræðir og læt samtarfsfólk mitt vita að ég fari af deildinni til að kíkja á hann.
Þegar ég kem á deildina, byrja ég á því að tala við hjúkrunarfræðinginn sem er ábyrgur
fyrir sjúklingnum og við förum svo saman til sjúklingsins. Þegar málið hefur verið leyst
sammælumst við um að gjörgæsluhjúkrunarfræðingur á næturvakt muni hringja til
að heyra hvernig gangi. Á leiðinni til baka kem ég við í matsalnum og kippi með mér
einhverjum kræsingum í kvöldmatinn. Vaktin líður áfram, við skiptumst á að fara í mat
og þegar allir eru komnir til baka hjálpumst við að með hin ýmsu verk, aðhlynningu,
sáraskipti, lyfjagjafir, framúrferðir, blóðprufur, samtöl við ættingja, annaðhvort í síma
eða á deildinni, og skráningu svo eitthvað sé nefnt.
Enn hringir síminn og áður en ég svara honum, loka ég augunum og sendi
beiðni út í kosmosið um að þetta sé einhver að segjast ætla að fórna
nætursvefninum og koma á næturvakt.
Í símanum er hins vegar sérfræðingurinn á vaktinni. Hún segir mér að á leiðinni í hús sé
maður sem hafi farið í hjartatopp í heimahúsi og þurfi á gjörgæslu að halda. Hann muni
fyrst fara í hjartaþræðingu og sneiðmyndatöku en koma að þeim rannsóknum loknum
á deildina. Ég er eini lausi hjúkrunarfræðingurinn svo það gefur auga leið að ég taki við
sjúklingnum sem er á leiðinni til okkar.
Við hjálpumst að við að undirbúa komu hans, yfirfara stæði og tækjabúnað og blanda
þau lyf sem við þurfum til að meðhöndla sjúklinginn. Ég bið einn af sjúkraliðunum
okkar að fara með gjörgæslurúm á hjartaþræðingarstofuna svo hægt sé að flytja
sjúklinginn upp til okkar á öruggan hátt. Það er allt tilbúið fyrir komu sjúklings og ég
Vaktin mín
tek mér tíma til að kíkja enn á vakstjórasímann. Þar
leynist SMS frá hjúkrunarfræðingi sem er til í að koma
á næturvaktina. Ég hringi strax í hana til að staðfesta
vaktina og bæti henni á planið.
Ég nýti tímann áður en sjúklingurinn, sem ég á að taka
við, kemur á deildina til að heyra í öllum hjúkrunar-
fræðingum vaktarinnar um ástand sjúklinganna til að
geta gefið næsta vaktstjóra yfirsýn yfir deildina. Renni
yfir mönnun og ráðfæri mig við góðan kollega um
niðurröðun verkefna fyrir næstu vakt og við gerum
smávægilegar breytingar. Enn hringir síminn og í þetta
skipti er það sérfræðingurinn okkar að láta vita að þau
séu á leiðinni á deildina með sjúklinginn. Ég finn hvernig
púlsinn verður aðeins hraðari því verkefnið fram undan
er bæði krefjandi og spennandi. Þegar nýr sjúklingur
leggt inn á deildina eru allir tilbúnir að aðstoða.
Móttakan gengur vel, sjúklingurinn er í öndunarvél og
með sídreypi í æð sem styðja við hjarta og æðakerfi og
lyf til slæfingar. Við tengjum hann í hjartasírita og getum
þannig séð í beinni útsendingu helstu lífsmörk eins
og púls, blóðþrýsting, öndunartíðni og hita og getum
brugðist við hratt og örugglega ef einhverjar breytingar
verða. Ég fer yfir meðferðina með sérfræðingi og við
leggjum línur fyrir næstu klukkustundirnar.
Tíminn hefur liðið hratt og áður en ég veit af er nætur-
vaktin mætt. Við förum yfir mál sjúklingsins, fyrirhugaða
meðferð og hvað hefur þegar verið gert. Ég veit að ég
skil sjúklinginn minn eftir í öruggum höndum og fer og
leita uppi vaktstjóra næturvaktarinnar til að gefa henni
yfirsýn yfir deildina og plön morgundagsins. Þau geta
auðveldlega riðlast, þannig er starfsemi gjörgæslunnar
einfaldlega. Þar breytast hlutirnir hratt og ég veit að
þegar geng inn á deildina á næstu vakt gætu aðstæður á
deildinni verið allt aðrar. Það og akkúrat það er það besta
en líka það erfiðasta við að vinna á gjörgæslu.
Vaktinni minn er lokið og ég geng út af deildinni,
tæmi hugann og það eina sem ég spái í núna er
hvaða leið ég ætla að ganga heim.
Gunnar Helgason, Áslaug Arnoldsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingar.