Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 54
54 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
COVID-19 hefur haft víðtæk áhrif á allan heiminn. Faraldurinn
hefur orðið til þess að breytingar hafa orðið á heilbrigðis-
þjónustu við foreldra í barneignarferlinu og hann hefur haft
neikvæðar afleiðingar á aðgengi og gæði þjónustunnar (Kotlar
o.fl., 2021). Mæðravernd hefur tekið miklum breytingum
og á sumum sjúkrahúsum farið að hluta til fram í gegnum
fjarfundabúnað. Stuðningsaðilar hafa víða ekki verið leyfðir
í fósturskimunum og fæðingarnámskeið verið felld niður
(Burgess o.fl., 2021; Davis-Floyd o.fl., 2020). Verðandi mæður
hafa upplifað ótta og kvíða við sjúkdóminn og óttast að
smitast af COVID-19 á spítala eða í mæðravernd (Davis-Floyd
o.fl., 2020).
Í mörgum löndum hefur konum verið neitað um þann stuðning
sem þær kjósa í fæðingu vegna sóttvarnaraðgerða (Davis-
Floyd o.fl., 2020). Margar mæður upplifðu skort á stuðningi frá
heilbrigðisstarfsfólki við brjóstagjöf. Mæður leituðu því margar
hverjar frekar til aðstandenda eftir stuðningi og hagnýtum
ráðum (Vazquez-Vazquez o.fl., 2021). Hræðsla var við að
bera smit frá móður til barns með brjóstagjöf og dæmi um
að ráðið var frá brjóstagjöf ef grunur var um smit hjá móður
(Souto o.fl., 2020). Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur gefið
út að ávinningur brjóstagjafar sé meiri en hætta á mögulegu
smiti til nýburans og því ætti að hefja brjóstagjöf eins fljótt og
mögulegt er (Kotlar o.fl., 2021).
COVID-19 faraldurinn hefur leitt til aukinnar streitu og hafa
rannsóknir sýnt fram á að aukið álag og streita getur haft mikil
áhrif á rómantískt samband pars (Pietromonaco og Overall,
2020; Russell o.fl., 2020).
LOKAORÐ
Streita á tímum COVID-19 hefur verið greinilegri hjá foreldrum
en öðrum fullorðnum einstaklingum (Russell o.fl., 2020).
Foreldrar sem glímdu við álagsþætti fyrir faraldurinn s.s.
fjárhagserfiðleika og börn með sérþarfir voru í meiri hættu á
að finna fyrir neikvæðum áhrifum COVID-19 á andlega heilsu
(Prime o.fl., 2020; Russell o.fl., 2020).
Rannsóknum ber saman um að faraldurinn hefur haft víðtæk
áhrif á barneignarferli, fjölskyldulíf og líðan foreldra. Hafa
ber í huga að faraldurinn er enn í gangi og endanleg áhrif því
ekki ljós. Frekari rannsóknir munu eflaust bæta þekkingu á
COVID-19 sjúkdómnum og afleiðingum hans í framtíðinni.
Hjúkrunarleg gildi undirstrika mikilvægi þess að hlúa að
andlegri líðan foreldra í gegnum barneignarferlið, halda utan
um fjölskylduna og stuðla að eðlilegu fjölskyldulífi. Draga
má margvíslegan lærdóm af COVID-19 faraldrinum þar sem
margt hefur þurft að breytast og fólk þurft að aðlagast nýjum
aðstæðum. Því mætti álykta að heilbrigðiskerfið sé betur
undirbúið fyrir hamfarir og jafnvel aðra heimsfaraldra eftir að
hafa tekist á við COVID-19. Hjúkrunarfræðingar hafa án efa
lært mikið á þessum tíma og fengið dýrmæta reynslu bæði
af því sem hefur gengið vel en ekki síður af því sem gekk verr.
Getur sú þekking hjálpað þeim að átta sig betur á þörfum
foreldra í gegnum barneignarferlið, tilfinningum og þeim
stuðningi sem þeir þurfa á að halda.
á tímum heimsfaraldurs. Þeir þurftu gjarnan sjálfir að finna
út úr hlutunum og fengu ekki þá aðstoð sem áður stóð til
boða. Hjúkrunarfræðingar eru meðal annarra heilbrigðisstétta
í lykilhlutverki að huga að félagslegri og andlegri líðan
fjölskyldunnar eftir að nýtt barn kemur í heiminn (Ollivier o.fl.,
2021).
Þegar COVID-19 smitum fór að fjölga þurfti að grípa til ýmissa
ráðstafana. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður þurftu að
breyta starfsháttum sínum í takt við faraldurinn s.s. með
því að takmarka persónulega þjónustu og veita þess í stað
þjónustu í gegnum fjarfundabúnað eða síma. Verðandi mæður
hafa upplifað mikla hræðslu í faraldrinum sökum skorts á
upplýsingum um afleiðingar sjúkdómsins og takmarkana.
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður brugðust við því með því
að setja upp ráðgjafalínur og símaver og birta myndbönd
(Walton, 2020). Heilbrigðisstarfsmenn þurfa að vera vakandi
fyrir því að þreyta og tilfinningalegt álag í kjölfar sóttkvíar og
félagslegrar fjarlægðar vegna breytinga á vinnu, skólastarfi
og umönnun eykst eftir því sem ástandið varir lengur. Þeir
þurfa að geta veitt úrræði til að aðstoða umönnunaraðila við
að halda áfram að sinna foreldrahlutverkinu og veita börnum
sínum öryggi og vernd (Russell o.fl., 2020).
Barneignarferli á tímum COVID-19