Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 54
54 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 COVID-19 hefur haft víðtæk áhrif á allan heiminn. Faraldurinn hefur orðið til þess að breytingar hafa orðið á heilbrigðis- þjónustu við foreldra í barneignarferlinu og hann hefur haft neikvæðar afleiðingar á aðgengi og gæði þjónustunnar (Kotlar o.fl., 2021). Mæðravernd hefur tekið miklum breytingum og á sumum sjúkrahúsum farið að hluta til fram í gegnum fjarfundabúnað. Stuðningsaðilar hafa víða ekki verið leyfðir í fósturskimunum og fæðingarnámskeið verið felld niður (Burgess o.fl., 2021; Davis-Floyd o.fl., 2020). Verðandi mæður hafa upplifað ótta og kvíða við sjúkdóminn og óttast að smitast af COVID-19 á spítala eða í mæðravernd (Davis-Floyd o.fl., 2020). Í mörgum löndum hefur konum verið neitað um þann stuðning sem þær kjósa í fæðingu vegna sóttvarnaraðgerða (Davis- Floyd o.fl., 2020). Margar mæður upplifðu skort á stuðningi frá heilbrigðisstarfsfólki við brjóstagjöf. Mæður leituðu því margar hverjar frekar til aðstandenda eftir stuðningi og hagnýtum ráðum (Vazquez-Vazquez o.fl., 2021). Hræðsla var við að bera smit frá móður til barns með brjóstagjöf og dæmi um að ráðið var frá brjóstagjöf ef grunur var um smit hjá móður (Souto o.fl., 2020). Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur gefið út að ávinningur brjóstagjafar sé meiri en hætta á mögulegu smiti til nýburans og því ætti að hefja brjóstagjöf eins fljótt og mögulegt er (Kotlar o.fl., 2021). COVID-19 faraldurinn hefur leitt til aukinnar streitu og hafa rannsóknir sýnt fram á að aukið álag og streita getur haft mikil áhrif á rómantískt samband pars (Pietromonaco og Overall, 2020; Russell o.fl., 2020). LOKAORÐ Streita á tímum COVID-19 hefur verið greinilegri hjá foreldrum en öðrum fullorðnum einstaklingum (Russell o.fl., 2020). Foreldrar sem glímdu við álagsþætti fyrir faraldurinn s.s. fjárhagserfiðleika og börn með sérþarfir voru í meiri hættu á að finna fyrir neikvæðum áhrifum COVID-19 á andlega heilsu (Prime o.fl., 2020; Russell o.fl., 2020). Rannsóknum ber saman um að faraldurinn hefur haft víðtæk áhrif á barneignarferli, fjölskyldulíf og líðan foreldra. Hafa ber í huga að faraldurinn er enn í gangi og endanleg áhrif því ekki ljós. Frekari rannsóknir munu eflaust bæta þekkingu á COVID-19 sjúkdómnum og afleiðingum hans í framtíðinni. Hjúkrunarleg gildi undirstrika mikilvægi þess að hlúa að andlegri líðan foreldra í gegnum barneignarferlið, halda utan um fjölskylduna og stuðla að eðlilegu fjölskyldulífi. Draga má margvíslegan lærdóm af COVID-19 faraldrinum þar sem margt hefur þurft að breytast og fólk þurft að aðlagast nýjum aðstæðum. Því mætti álykta að heilbrigðiskerfið sé betur undirbúið fyrir hamfarir og jafnvel aðra heimsfaraldra eftir að hafa tekist á við COVID-19. Hjúkrunarfræðingar hafa án efa lært mikið á þessum tíma og fengið dýrmæta reynslu bæði af því sem hefur gengið vel en ekki síður af því sem gekk verr. Getur sú þekking hjálpað þeim að átta sig betur á þörfum foreldra í gegnum barneignarferlið, tilfinningum og þeim stuðningi sem þeir þurfa á að halda. á tímum heimsfaraldurs. Þeir þurftu gjarnan sjálfir að finna út úr hlutunum og fengu ekki þá aðstoð sem áður stóð til boða. Hjúkrunarfræðingar eru meðal annarra heilbrigðisstétta í lykilhlutverki að huga að félagslegri og andlegri líðan fjölskyldunnar eftir að nýtt barn kemur í heiminn (Ollivier o.fl., 2021). Þegar COVID-19 smitum fór að fjölga þurfti að grípa til ýmissa ráðstafana. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður þurftu að breyta starfsháttum sínum í takt við faraldurinn s.s. með því að takmarka persónulega þjónustu og veita þess í stað þjónustu í gegnum fjarfundabúnað eða síma. Verðandi mæður hafa upplifað mikla hræðslu í faraldrinum sökum skorts á upplýsingum um afleiðingar sjúkdómsins og takmarkana. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður brugðust við því með því að setja upp ráðgjafalínur og símaver og birta myndbönd (Walton, 2020). Heilbrigðisstarfsmenn þurfa að vera vakandi fyrir því að þreyta og tilfinningalegt álag í kjölfar sóttkvíar og félagslegrar fjarlægðar vegna breytinga á vinnu, skólastarfi og umönnun eykst eftir því sem ástandið varir lengur. Þeir þurfa að geta veitt úrræði til að aðstoða umönnunaraðila við að halda áfram að sinna foreldrahlutverkinu og veita börnum sínum öryggi og vernd (Russell o.fl., 2020). Barneignarferli á tímum COVID-19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.