Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 56
Að verja starfsheilbrigði í
krefjandi starfsumhverfi
hjúkrunarfræðinga
Reynsla hjúkrunarfræðinema
af áhrifum boðorða þjónandi
forystu innan heilbrigðiskerfisins
GUÐRÚN EYDÍS EYJÓLFSDÓTTIR
HULDA SIF ÞÓRISDÓTTIR
LAUFEY LIND STURLUDÓTTIR
MARGRÉT ÁSTA ÍVARSDÓTTIR
MARÍA RÓS SIGURBJÖRNSDÓTTIR
ÞORBJÖRG INGA ÁSBJARNARDÓTTIR
Nemendur við Háskólann á Akureyri
DR. SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
Kennari
Höfundar
HINN ÚTKEYRÐI HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Heilbrigðisstörf eru álagstengd margra hluta vegna. Má
þar nefna niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, undirmönnun,
skort á starfsfólki og núna síðast áhrif af COVID-19.
Hjúkrunarfræðingar eru undir vaxandi álagi vegna þessa
og samhliða hafa kröfur á stéttina aukist. Orsakir bæði
stöðugs og langvarandi álags í starfi hafa valdið aukningu
einkenna streitu og kulnunar, sem brýst gjarnan fram í formi
tilfinningalegrar örmögnunar (Guo o.fl., 2017).
Stjórnendur og deildarstjórar eru eins misjafnir og þeir eru
margir og aðhyllast þeir og fylgja mismunandi stjórnunar-
stílum. Höfundar hafa allar reynslu af stjórnendum frá sínum
vinnustöðum, bæði góða og slæma. Starf hjúkrunarfræðinga
er margþætt og skiptir þar miklu að hafa gott utanumhald og
yfirsýn. Þegar upp koma vandamál er hins vegar mikilvægt
að geta leitað til stjórnanda. Stuðningur, góð samskipti,
viðurkenning og hvatning frá stjórnanda eru allt þættir sem
ýta undir vellíðan í starfi og þá tilfinningu að starfsmaðurinn
skipti máli.
Ákveðið var að skoða sérstaklega stjórnunarstílinn sem
kenndur er við þjónandi forystu. Höfundar telja að með hann
að leiðarljósi sé hægt að minnka álag á starfsfólk og koma á
betra starfsumhverfi. Þjónandi forysta er í senn leiðtoga- og
stjórnunarstíll, sem leggur til uppbyggilega leið til að auka
traust, siðferði og fagmennsku á vinnustaðnum.
Í þjónandi forystu huga stjórnendur að heildinni, högum
starfsfólks og uppbyggingu starfs á jafningjagrundvelli.
Rannsóknir sýna að framkoma leiðtoga og líðan hans
hefur áhrif á líðan og árangur undirmanna. Þannig geta
styðjandi stjórnendur lækkað streituvalda hjá sínu starfsfólki
og bætt líðan þeirra. Ánægja og áhugi af starfi hjálpar
hjúkrunarfræðingum við að veita góða hjúkrun, skapa góðan
starfsanda og minnkar starfsmannaveltu (Chen og Chen,
2018).
Heilsa og vellíðan hjúkrunarfræðinga hefur mikið að segja um
starfsgetu og starfsheilbrigði þeirra. Þar geta álagsþættir og
slæm líðan komið niður á veittri hjúkrun, umönnun og öryggi
skjólstæðinga. Hér verður leitast við að svara spurningunum:
Hvaða þættir í starfi hjúkrunarfræðinga eru líklegastir til að
draga úr starfsheilbrigði og starfsánægju? Með hvaða hætti
er hægt að bregðast við því álagi sem myndast hefur innan
hjúkrunar vegna COVID-19? Og hvernig má nýta leiðtogafærni
og þjónandi forystu til að styðja við starfsheilbrigði
hjúkrunarfræðinga?