Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 61
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 61
heilindum og einlægni stjórnandans og að hann sé sannur
bæði í framkomu og starfi gagnvart sínum starfsmönnum.
Tafla 2 sýnir samantekt á umfjöllunarefninu
Horft til framtíðar
Margir hjúkrunarfræðingar verja stórum hluta ævinnar á
vinnustað sínum. Gott starfsumhverfi er talið skila sér í meiri
starfsánægju. Til að bæta starfsumhverfi og starfsheilbrigði
hjúkrunarfræðinga er mikilvægt að nýta þá þekkingu og
reynslu sem til er um efnið. Þar á meðal um þau neikvæðu
áhrif sem álag og undirmönnun getur haft á störf og líðan
hjúkrunarfræðinga. Líkja má þessu við öryggisatriði sem
farið er yfir í flugvélum. Við verðum fyrst að setja á okkur
súrefnisgrímuna sjálf áður en við aðstoðum aðra. Þannig
felst ávinningur atvinnurekanda í því að hjúkrunarfræðingar
hlúi að sjálfum sér, enda tryggir það sjúklingum og öðrum
þjónustuþegum betri hjúkrun. Þeir þættir sem hafa einna helst
áhrif á starfsheilbrigði eru álag í starfi og stjórnunarhættir.
Mikið álag og ónægur stuðningur geta leitt til streitu sem
er beinn áhættuþáttur fyrir kulnun. Aðstæður sem leiða til
kulnunar geta skapast í kjölfar niðurskurðar og illa skipulagðra
breytinga. Mikilvægt er að hlúa að andlegri heilsu starfsmanna
því það eykur vellíðan þeirra í starfi. Ekki er hægt að ítreka
nógsamlega mikilvægi sjálfsumönnunar hjúkrunarfræðinga
og að atvinnurekendur stuðli að slíkum aðstæðum eða
tækifærum.
Síðan COVID-19 faraldurinn skall á heimsbyggðina hafa
heilbrigðisstarfsmenn þurft að takast á við áður óþekktar
aðstæður og gríðarlegt álag í starfi. Á sama tíma hefur dregið
úr almennri heilsugæslu og menn óttast að myndast hafi
uppsöfnuð þörf fyrir heilbrigðisþjónustu. Því er ljóst að
hjúkrunarfræðingar munu áfram vinna í krefjandi umhverfi
sem vegið getur að starfsheilbrigði þeirra. Tillögur um
hvernig bregðast megi við áhrifum af COVID-19 hafa verið
settar fram af Alþjóðaráði hjúkrunarfræðinga. Í þeim kemur
fram mikilvægi þess að gæta betur að öryggi í starfsumhverfi
og huga að heilsu og velferð hjúkrunarfræðinga. Í því felst
að efla þá í leiðtoga- og forystuhlutverkum og fá þá að
teikniborðinu þegar kemur að stefnumótun og áætlanagerð
í heilbrigðisþjónustu. Þá er líklegt að fara þurfi sérstaklega
yfir vinnuverndarlögin og horfa þarf til hvernig tryggja eigi
heilsuvernd heilbrigðisstarfsmanna.
Leiðtogastíll stjórnanda leikur stórt hlutverk við mótun góðs
starfsanda á vinnustöðum og er því beintengdur starfsánægju.
Þjónandi forysta byggir á hugmyndafræði sem hægt er að
Fræðslugrein
Tafla 1. Átta meginþættir þjónandi forystu
Boðorð þjónandi forystu
Efling
(e. empowerment)
Leiðtoginn hvetur fylgjendur sína og stuðlar
með því að persónulegum þroska þeirra. Eflir
sjálfstraust þeirra og eykur trú á eigin færni og
ákvarðanatöku
Ábyrgðarskylda
(e. accountability)
Leiðtoginn höfðar til ábyrgðar á þeirri vinnu
fylgjenda sinna sem þeir geta borið ábyrgð á
Forgangsröðun í þágu
annarra
(e. standing back)
Leiðtoginn setur mál sem fylgjendur hafa
áhuga á í forgang og veitir þeim stuðning og
viðurkenningu fyrir vel unnin verk
Auðmýkt
(e. humility)
Leiðtoginn getur viðurkennt eigin mistök og
þekkir sínar sterku og veiku hliðar og er fær um
að leita eftir stuðningi annarra þegar hann þarf
Falsleysi
(e. authenticity)
Leiðtoginn er trúr sjálfum sér og kemur
sannlega fram eins og hann er
Hugrekki
(e.courage)
Leiðtoginn hefur þor til að taka áhættu, breyta
venjum og standa á móti föstum starfsháttum
með nýjum aðferðum og leiðum
Fyrirgefning
(e. interpersonal
acceptance)
Leiðtoginn setur sig í spor fylgjenda og sýnir
hæfni til að fyrirgefa og leggja ágreiningsmál
til hliðar
Ráðsmennska
(e. stewardship)
Leiðtoginn sýnir og tekur ábyrgð. Hann
er fyrirmynd í vinnu og þátttöku og setur
hagsmuni heildarinnar í forgang
(van Dierendonck og Nuijten, 2011)
Tafla 2. Þættir sem stuðla að starfsheilbrigði
Starfsheilbrigði Reynsla höfunda Hvað segja fræðin? Þjónandi forysta
Áhugi Hver ber ábyrgð á eigin starfsheilbrigði Hlúa að mannauðnum Sjálfsefling
Heilsa og líðan Úrræði og bjargráð til betri líðanar og eflingar
starfsheilbrigðis
Siðferði og gildi á vinnustöðum Árangur í starfi
Viðurkenning Samskipti við stjórnendur mikilvæg og eykur samvinnu Stjórnunarstíll yfirmanns Stuðningur frá yfirmanni
Starfsánægja Þekktu rauðu ljósin Samskipti við stjórnanda Gagnkvæmt traust
horfa til sem uppbyggilegs stjórnunarstíls. Boðorð hennar
byggja á trausti, skýrum markmiðum og stuðningi frá
stjórnanda. Samkvæmt henni er helsta markmið stjórnanda
að þjóna undirmönnum sínum og skapa gott vinnuumhverfi.
Þannig vinna allir saman að settum markmiðum og samstaða
myndast. Styðjandi yfirmaður ber virðingu fyrir starfsfólki
sínu og sýnir þeim traust sem veitir þeim viðurkenningu
í starfi. Þá leggur hann sig fram um að draga úr streitu í
vinnuumhverfi sem hefur í för með sér jákvæð áhrif. Þau
áhrif skila sér í betra starfsheilbrigði, hjálpa starfsmönnum
að þekkja viðvörunarljósin, draga úr kulnun og bæta
almenna heilsu og vellíðan. Heilbrigðiskerfið stendur og
fellur með starfsfólki innan þess. Þar eru hjúkrunarfræðingar
ein af burðarstoðunum. Til mikils er að vinna og getur
áhrifarík stjórnun bætt starfsheilbrigði þeirra, sem er
mikilvægur hlekkur til að viðhalda og uppfylla hjúkrunarþörf
framtíðarinnar.