Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 77

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 77
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 77 Að kynna: Kynning fór fram með rafrænum hætti. Allir í þýðinu fengu gátlistana senda í tölvupósti, auk þess sem þeim var komið fyrir á skurðstofum og sameiginlegum rýmum einingarinnar. Rafræn glærukynning og kynningarmyndbönd voru einnig send á sömu aðila. Óskað var eftir athugasemdum varðandi innihald listanna, framsetningu og notkun. Framkvæmd Þátttakendur svöruðu sama spurningalista í september 2020 og í janúar 2021, en við seinni fyrirlögn var bætt við spurningum varðandi innleiðingarferlið, meðal annars hvort þátttakendur hefðu kynnt sér nýju gátlistana. Kynningarbréf var sent í tölvupósti en spurningalistinn á pappír í innanhússpósti. Þátttakendum voru gefnar þrjár vikur til að svara hvorum spurningalista og var áminningarbréf sent í tölvupósti eftir tvær vikur. Spurningalistum var skilað í merktu umslagi í skilakassa innan SAk. Greining gagna Lýsandi tölfræði var notuð til að lýsa viðhorfum þátttakenda til einstakra þátta en t-próf óháðra hópa voru gerð til að bera saman viðhorf milli mismunandi hópa eftir starfsstétt, starfssviði og starfsaldri á sérsviði. Breyting á viðhorfi fyrir og eftir kynningu á gátlistum var mæld með pöruðu t-prófi. Við gagnagreiningu var starfsaldur tekinn saman úr fimm hópum og settur í tvo. Miðað var við ≤ 15 ára reynslu á starfssviði og ≥16 ára til að hafa sem jafnastan fjölda í hvorum hóp. Tölfræðiforritið SPSS (útgáfa 27) var notað við greiningu gagna. Ritrýnd grein | Peer review 2. Yfirlit um svörun í september 2020 (T1) og janúar 2021 (T2) má sjá í töflu 1. Þátttakendur sem svöruðu báðum spurningalistum voru 59,6% (n=28), 6,4% (n=3) svöruðu ekki og 6,4% (n=3) svöruðu bara seinni spurningalistanum. NIÐURSTÖÐUR Spurning T1* T2* T1* T2* T1* T2* T1* T2* T1* T2* T1* T2* Hversu vel/illa telur þú að gátlistar myndu nýtast við venjubundin störf á skurðstofum? 22 (54%) 17 (55%) 15 (37%) 12 (39%) 4 (9,8%) 2 (6,5%) 0 0 0 0 41 (100%) 31 (100%) Hversu vel/illa telur þú að gátlistar myndu nýtast í bráðatilfellum sem mögulega koma upp á skurðstofum? 16 (39%) 16 (52%) 17 (41%) 13 (42%) 6 (15%) 2 (6,5%) 1 (2,4%) 0 1 (2,4%) 0 41 (100%) 31 (100%) Í venjubundnum störfum, hversu vel/ illa treystir þú þér til að framkvæma þau verk sem þarf, með því að stóla á þekkingu þína og minni eingöngu? 14 (34%) 9 (29%) 21 (51%) 18 (58%) 6 (15%) 4 (13%) 0 0 0 0 41 (100%) 31 (100%) Í bráðatilfellum sem mögulega koma upp á skurðstofu, hversu vel/illa treystir þú þér til að framkvæma þau verk sem leysa þarf, með því að stóla á þekkingu þína og minni eingöngu? 7 (17%) 4 (13%) 25 (61%) 11 (35%) 8 (20%) 14 (45%) 1 (2,4%) 2 (6,5%) 0 0 41 (100%) 31 (100%) Tafla 2. Svör þátttakenda við spurningum um hversu vel þátttakendur töldu að gátlistar myndu nýtast og hversu vel þátttakendur treystu sér til að framkvæma störf sín án gátlista. Fjöldi svara og hlutfall af heild (%). Mjög vel Frekar vel Hvorki vel né illa Frekar illa Mjög illa Samtals T1 er mælipunktur fyrir innleiðingu gátlista á skurðstofum. *T2 er mælipunktur eftir tvö þrep af fjórum í innleiðingu á gátlistum vegna bráðra vandamála á skurðstofu. Leyfi fyrir rannsókn – samþykki þátttakenda Sótt var um leyfi til siðanefndar SAk, sem taldi ekki þörf á samþykki fyrir rannsókn en skriflegt leyfi fékkst hjá framkvæmdastjórum lækninga og hjúkrunar á SAk. Í kynningarbréfi var þátttakendum kynntur réttur til að hafna þátttöku, að svör yrðu ekki rakin til einstakra þátttakenda og atriði tengd vörslu og eyðingu rannsóknargagna. Þátttaka í rannsókn var túlkuð sem upplýst samþykki. Tafla 1. Heildarsvörun þátttakenda, svörun eftir starfsstétt og skipting svar- enda eftir starfssviði og starfsaldri á sérsviði. Fjöldi og hlutfall af heild (%). Svörun T1* T2* Heildarsvörun 41/47 (87,2%) 31/46 (67,4%) Svörun sérfræðilækna 25/26 (96,2%) 17/26 (65,4%) Svörun hjúkrunarfræðinga 16/21 (76,2%) 14/20 (70,0%) Tilheyrðu svæfingasviði 12/41 (29,3%) 12/31 (38,7%) Tilheyrðu skurðsviði 29/41 (70,7%) 19/31 (61,3%) Höfðu starfsaldur ≤15 ár 17/41 (41,5%) 16/31 (51,6%) Höfðu starfsaldur ≥16 ár 24/41 (58,5%) 15/31 (48,4%) *T1 er mælipunktur fyrir innleiðingu gátlista á skurðstofum. *T2 er mælipunktur eftir tvö þrep af fjórum í innleiðingu á gátlistum vegna bráðra vandamála á skurðstofu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.