Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 88
88 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Útskriftarvandi Landspítalans
Í viðtölunum kom fram að það væri tilfinning starfsmanna
Landspítalans að of mikil ábyrgð væri sett á stofnunina og
starfsfólk hennar. Bára sagðist upplifa „að við eigum bara að
leysa allt“ þegar kæmi að úrræðaleysi utan spítalans og Sigrún
benti þar á óljós hlutverk og ábyrgð. Hafdís sagði að „það geta
allir sagt sig frá verkefnum nema spítalinn“. Útskriftarvinnan
er umfangsmikil að mati viðmælenda og margt sem þarf að
huga að. Vinnan er þverfagleg og gerð í samráði við sjúklinga
og aðstandendur. Að sækja um úrræði utan Landspítalans
getur verið tímafrek og erfið vinna en úrræðaleysið hefur áhrif
á samskipti milli þjónustuaðila miðað við svör viðmælenda.
Allir viðmælendur töldu að hefja þyrfti útskriftarferlið fyrr.
Kristín taldi það alveg ljóst að hefja þurfi ferlið fyrr og sagði:
„Það er allt of seint farið að huga að útskrift“ og nefndi
þá að upplýsingaskráning væri oft ekki næg. Bára taldi að
uppvinnsla hjá öldruðum sjúklingum gæti því miður verið
ófullnægjandi og því til skýringar sagði hún: „Kannski af því að
gamla fólkið verður alltaf útundan.“
Ytri hindranir
Ytri hindranir reyndust vera skortur á þjónustuúrræðum
fyrir aldraða sem leiddi til seinkunar á útskriftum af
Landspítalanum. Allir viðmælendur töldu mikla vöntun á
úrræðum, Sigrún sagði að þegar kæmi að útskrift tæki það
„allt mið af úrræðum utanhúss.“ Hafdís taldi ástæðuna
vera skort á fjármagni í þjónustu við aldraða og sagði það
Þemagreining leiddi í ljós sex yfirþemu, hvert og eitt með þrjú
til sjö undirþemu eins og sjá má á mynd 1. Yfirþemun voru
eftirfarandi: innri hindranir, ytri hindranir, reynsla og upplifun
starfsmanna, ytri lausnir, innri lausnir og aukin ábyrgð ríkis og
sveitarfélaga.
Innri hindranir
Innri hindranir innan Landspítalans reyndust vera þrýstingur
á flæði, óljós ábyrgð, umfangsmikil útskriftarvinna og seinkun
á að hefja útskriftarferlið innan Landspítalans. Margrét benti
á hversu slæmt ástandið væri og sagði að það væri „alltaf
verið að reyna að ýta fólki áfram í kerfinu ... fólk er að bíða
á bráðadeildinni ... það er alveg massíft þar ... og fólk er á
bráðalegudeild ... og þegar byrjað í uppvinnslu þar ... og síðan
byrjar pressan ....“ Flestir viðmælendur fundu fyrir þessum
þrýstingi og sögðu frá því að þeir fengju reglulega símtöl,
jafnvel daglega, frá flæðideild og/eða innlagnarstjóra þar
sem spurt væri hvort einhver pláss væru ekki að fara að losna.
Sjúklingar eru veikari nú en áður, miðað við svör viðmælenda,
en á sama tíma er lögð meiri áhersla á hraða. Kristín sagði:
„Mér finnst fólk vera mun slappara sem kemur núna inn á
deildina þannig að maður er að keyra þetta á meiri hraða í
gegn.“ Margrét talaði um að margir aldraðir sjúklingar færu
„einhvern svona hring inni á sjúkrahúsinu“ og að einhvern
veginn virtist sem ástandið ylli því að enginn væri á réttum
stað.
NIÐURSTÖÐUR
Mynd 1. Meginþemu rannsóknar ásamt undirþemum.
Innri hindranir Ytri hindranir
Reynsla og upplifun
starfsmanna
Innri lausnir Ytri lausnir
Aukin ábyrgð ríkis
og sveitarfélaga
Þrýstingur á
flæði
Úrræðaleysi og
of flókið kerfi
Lýjandi áhrif og
togstreita í starfi
Hefja
útskriftarferlið
fyrr
Sóknarfæri í
umbótum á
heimaþjónustu
Breytingar á
heilbrigðis-
kerfinu með tilliti
til aldraðra
Óljós
ábyrgð
Heimahjúkrun
eyland
Neikvæð áhrif
á samskipti
Ráðþrota
aðstandendur
Bæta skráningu,
uppvinnslu og
samvinnu
Betri nýting
annarra úrræða
Einföldun á kerfi
og skýr ábyrgð
Umfangsmikil
útskriftarvinna
Versnandi staða
hjúkrunarheimila
Ömurlegt að
vera eyrna-
merktur sem
biðsjúklingur
Umönnunarbyrði
aðstandenda
Endurhæfing
utan
Landspítalans
Fyrirbyggja
óþarfa innlagnir
Aukin ábyrgð
sveitarfélaga
Seinkun
á útskrift
Slæm
heilsufarsáhrif
langrar legu
Bjöguð viðhorf
gagnvart
öldruðum
Sameiginleg
Heilsugátt og
áframhaldandi
samþætting
Þörf á fjölbreytni
í búsetuúrræðum
Efla fræðslu,
forvarnir og
stuðning