Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 106

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 106
106 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022 Mikilvægt er að stunda reglulega hreyfingu, ekki eingöngu til að fyrirbyggja ýmsa sjúkdóma, heldur einnig til að öðlast meiri líkamshreysti, vellíðan og betri lífsgæði. Í ráðleggingum Lýðheilsustöðvar (2008) um hreyfingu kemur fram að börn ættu að hreyfa sig í að minnsta kosti 60 mínútur á dag. Rannsókn Santos o.fl. (2019) sýndi að börn sem stunduðu einhvers konar hreyfingu einu sinni til þrisvar í viku voru í 69% minni hættu á að vera of feit og börn sem stunduðu hreyfingu fjórum til sex sinnum í viku voru í 78% minni hættu en þau börn sem ekki stunduðu neina hreyfingu. Rannsóknir hafa sýnt fram á sterk tengsl milli þess að borða ekki morgunmat og að vera í yfirþyngd eða með offitu (Koca o.fl., 2017; Okada o.fl., 2018). Tengsl gosneyslu og offitu barna eru þekkt auk þess sem áhætta á að þróa með sér sykursýki af gerð 2 og ýmsa aðra sjúkdóma er aukin hjá börnum með offitu (Elva Gísladóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, 2015: Vos o.fl., 2016). Samkvæmt lýðheilsuvísi frá árinu 2018 kom fram að gosdrykkja, bæði barna og fullorðinna, er meiri á Suðurnesjum en annars staðar á landinu (Embætti landlæknis, 2018). Bandarísku hjartasamtökin (2016) hafa gefið út ráðleggingar sem viðbrögð við þeirri þróun sem orðið hefur á undanförnum áratugum þar sem fram kemur að börn og unglingar ættu að takmarka neyslu sína á sykruðum drykkjum í einn eða færri drykk á viku (um 250 ml). Í kanadískri rannsókn þar sem þátttakendur voru tveggja til 18 ára börn (n=217) með offitu kom í ljós að 76% þeirra voru með D-vítamínskort og voru sterk tengsl milli mittismáls barnanna og skorts á D-vítamíni auk þess sem þau voru í aukinni hættu á háþrýstingi og skertri insúlínstjórnun í líkamanum (McDonald o.fl., 2017). Rannsókn Giannios o.fl. (2018), sem gerð var í Grikklandi (n=232), gaf til kynna að D-vítamíngjöf geti dregið úr offitu barna og þar með einnig hættu á heilsufarsvanda svo sem hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki. Líkamsþyngdarstuðull barna sem tóku þátt í rannsókninni lækkaði umtalsvert með aukinni inntöku á D-vítamíni í 12 mánuði. Þetta gefur ákveðna vísbendingu um að D-vítamíngjöf geti haft jákvæð áhrif í meðferð barna með ofþyngd og offitu. Vísbendingar eru um að börn og fullorðnir á Íslandi fái of lítinn svefn og eigum við það sameiginlegt með fleiri vestrænum þjóðum (Litsfeldt o.fl., 2020). Í lýðheilsuvísi frá árinu 2019 kemur fram að hlutfallslega flestir fullorðnir íbúar á Suðurnesjum sofa of stutt (Embætti landlæknis, 2019). Of lítill svefn hefur fjölmargar líkamlegar og sálrænar afleiðingar bæði hjá börnum og fullorðnum. Svefn er ekki síst mikilvægur þegar kemur að alhliða þroska barna og mikilvægur öllum lífverum en skortur á svefni hefur neikvæðar afleiðingar fyrir efnaskipti, ónæmi og innkirtlastarfsemi líkamans sem getur leitt til ofþyngdar og offitu (Miller og Cappuccio, 2013). Samkvæmt ráðleggingum svefnmiðstöðvar í Bandaríkjunum (The National Sleep Foundation) er æskilegt að börn á aldrinum 6-13 ára fái 9-11 klukkustunda svefn og unglingar átta til tíu klukkustunda svefn (Hirshkowitz, o.fl., 2015). Hins vegar hefur komið í ljós að þriðjungur 12-14 ára og yfir helmingur 15-17 ára unglinga fá minna en sjö klukkustunda svefn á nóttunni (Bash o.fl., 2014). Rannsóknir sýna samband milli of lítils svefns og ofþyngdar og offitu hjá börnum á öllum aldri (Weihrauch-Blüher o.fl., 2019). Í rannsókn Litsfeldt o.fl. (2020) sem gerð var í Svíþjóð kom í ljós að samband reyndist vera á milli þess að sofa skemur Megindleg, lýsandi þversniðsrannsókn (e. descriptive study design). Þátttakendur Í þýðinu (N=1430) voru nemendur í 1., 4., 7. og 9. bekk í öllum 11 grunnskólum á Suðurnesjum skólaárið 2019-2020 en úrtakið var 1.402 nemendur. Skilyrði fyrir þátttöku voru að nemendur hefðu verið hæðar- og þyngdarmældir og skráning væri til um það í sjúkraskrárkerfinu ásamt grunnupplýsingum úr lífsstílsviðtali við skólahjúkrunarfræðing. Alls uppfylltu 1.402 nemendur þessi skilyrði. Gögn þeirra nemenda sem skilgreindir voru í yfirþyngd eða með offitu samkvæmt mælingum voru greind nánar (n=447). Gagnaöflun Gagna fyrir rannsóknina var aflað úr Ískrá sem er rafrænt sjúkraskrárkerfi heilsugæslunnar. Í heilsuvernd skólabarna er sjúkraskrárkerfið Ískrá notað við skráningu en það var innleitt á höfuðborgarsvæðinu veturinn 2002-2003 og er AÐFERÐ Holdafar grunnskólabarna en sjö klukkustundir/nótt og yfirþyngdar og offitu hjá 13-15 ára unglingum. Í íslenskri rannsókn var hvíldartími unglinga í 10. bekk borinn saman við ráðlagðan svefntíma, það er að segja minnst átta tíma nætursvefn. Niðurstöðurnar sýndu að einungis 5,0% drengja og 19,8% stúlkna náðu ráðlögðum hvíldartíma og bæði stúlkur og drengir sváfu skemur á skóladögum en á frídögum. Á frídögum náðu 68,9% drengja og 65,6% stúlkna ráðlögðum hvíldartíma fyrir unglinga (Vaka Rögnvaldsdóttir o.fl., 2018). Af þessu má álykta að íslenskir unglingar fá ekki nægan svefn og mögulega getur það, að hluta til, útskýrt aukið algengi á ofþyngd og offitu. Embætti landlæknis hefur á undanförnum árum stuðlað markvisst að heilsueflandi starfi í skólum með margvíslegu forvarnar- og heilsueflingarstarfi. Gefnar hafa verið út leiðbeiningar um heilsuvernd grunnskólabarna sem skólahjúkrunarfræðingar starfa eftir og er markmiðið að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Leiðbeiningarnar ná til helstu þátta sem tengjast heilsuvernd barna í grunnskólum og er þess vænst að notkun þeirra auki gæði í heilsuvernd grunnskólabarna. Störf skólahjúkrunarfræðinga fela meðal annars í sér forvarnir, skimanir, heilsueflingu, fræðslu, bólusetningar, ráðgjöf og umönnun grunnskólabarna með bráð og langvinn veikindi (Embætti landlæknis, 2014; Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, e.d.). Ekki fundust margar íslenskar rannsóknir um tengsl lífsstíls og holdafars grunnskólabarna en vitað er að ofþyngd og offita er vandamál meðal grunnskólabarna og þá ekki síst á Suðurnesjum. Mikilvægt er að greina hvaða lífsstílsþættir hafa tengsl við offitu og ofþyngd til að inngrip skólahjúkrunarfræðinga í lífsstíl grunnskólabarna til að bæta heilsufar þeirra verði sem markvissast. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna holdafar grunnskólabarna á Suðurnesjum skólaárið 2019-2020 og tengsl við lífsstílsþættina matar- og drykkjarvenjur, D-vítamíninntöku, líkamlega hreyfingu og svefn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.