Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 107

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 107
1. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 107 nú notað á landinu öllu. Í Ískrá eru skráðar upplýsingar um nemendur, heilsufarsleg vandamál þeirra, reglubundið eftirlit, samskipti þeirra og foreldra/forráðamanna við starfsfólk í heilsuvernd skólabarna, forvarnir, fræðslu og skimanir sem skólahjúkrunarfræðingar sinna. Skólahjúkrunarfræðingar skima alla nemendur í 1., 4., 7. og 9. bekk og hæðar- og þyngdarmælingar eru gerðar hjá þeim auk sjónmælinga og eru niðurstöður skráðar í Ískrá sem veitir góða yfirsýn yfir og heldur utan um upplýsingar er varða heilsufar nemenda. Í kjölfar mælinga er líkamsþyngdarstuðull nemenda reiknaður þar sem viðmið Cole o.fl. (2000) eru notuð og frávik metin. Einnig eru tekin lífsstílsviðtöl við börn í þessum sömu árgöngum og eru þau hugsuð sem mat á fræðsluþörf. Fyrirmynd lífsstílsviðtala kemur frá Norðurlöndum þar sem víða eru notaðar sambærilegar spurningar. En spurningarnar hér á landi voru útbúnar af starfshópi innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Framkvæmd Rannsóknin byggir á grunnupplýsingum úr lífsstílsviðtölum skólahjúkrunarfræðinga við nemendur í 1., 4., 7. og 9. bekk auk niðurstaðna hæðar- og þyngdarmælinga sem skráðar eru í sjúkraskrárkerfið Ískrá. Gögnin eru fyrir skólaárið 2019- 2020 og voru skráð í Excel-gagnagrunn og fengu nemendur rannsóknarnúmer. Þeir flokkast eftir litum í sjúkraskrárkerfi Ískrár eftir því hvort þeir eru í undirþyngd=blár, kjörþyngd= grænn, yfirþyngd=gulur eða ofþyngd=rauður. Við flokkun er notast við viðmiðin Cole o.fl. (2000) en þau eru kynjaskipt og notuð eru heil og hálf aldursár barna, reiknuð út frá fæðingardegi og skráningardegi mælinga. Börn á aldrinum fimm til nítján ára eru almennt talin vera of þung ef aldurs- tengdur LÞS þeirra er einu staðalfráviki fyrir ofan meðaltal en of feit ef þau eru tveimur og hálfu staðalfráviki fyrir ofan meðaltal (Cole o.fl., 2000). Rannsóknarbreyturnar voru settar upp í gagnagrunn rannsóknar og gildi þeirra skráð við rannsóknarnúmer hvers nemanda. Rannsóknin takmarkaðist við þær spurningar úr lífsstílsviðtölum sem tengdust mataræði, hreyfingu og hvíld, og sem var spurt um í að minnsta kosti þremur af fjórum árgöngum sem skimað var í. Rannsóknarbreytur Líkamsþyngdarstuðull (LÞS) nemenda í 1., 4., 7. og 9. bekk, aldur og kyn. Til viðbótar eru 11 spurningar um lífsstílsþætti sem eru viðtalsrammi lífsstílsviðtala og flokkast í þrjá þætti. A) spurningar sem tengjast mataræði: Borðaðir þú morgunmat í morgun? (já/nei); Tókst þú lýsi eða D-vítamín í morgun? (já/nei); Hversu oft í viku drekkur þú gosdrykk)? 0-1x/viku, 2-3x/viku, 4-5x/viku, 6-7x/viku. B) spurningar sem tengjast hreyfingu: Hvernig komst þú í skólann í morgun? Gangandi/ hjólandi/á bíl; æfir þú einhverjar íþróttir? (1. og 4. bekkur) (já/ nei); hversu oft í viku æfir þú íþróttir eða stundar reglulega hreyfingu? (7. og 9. bekkur) 0-1x/viku, 2-3x/viku, 4-5x/viku, 6-7x/viku. C) Spurningar sem tengjast svefni/hvíld: Hvenær áttu að fara að sofa þegar það er skóli daginn eftir? Fyrir 1. og 4. bekk; fyrir kl 21, kl 21-22, eftir kl 22, veit ekki. Fyrir 7. og 9. bekk: Hvenær ferð þú venjulega að sofa á kvöldin þegar það er skóli daginn eftir? Fyrir kl 22, kl 22-23, kl 23-24, eftir kl 24. Þessu til viðbótar eru nemendur í 4., 7. og 9. bekk spurðir að: Gengur þér vel að sofna á kvöldin? Finnur þú fyrir þreytu á daginn? Með svarmöguleikum, Aldrei – Sjaldan – Stundum – Oftast – Alltaf. Gengið var út frá leiðbeiningum um heilsuhegðun: Að borða morgunmat, taka Lýsi/D-vítamín, Alls voru 1.402 nemendur í 1., 4., 7. og 9. bekk í grunnskólum á Suðurnesjum skimaðir skólaárið 2019-2020. Af þeim voru alls 447 nemendur (32%) sem reyndust of þungir eða of feitir. Þar af voru 284 nemendur (20%) í yfirþyngd og 163 (12%) með offitu. Tafla 1 sýnir hlutfall og tíðni nemenda eftir bekkjum sem eru í undir-, kjör- og yfirþyngd og þeirra sem eru með offitu, flokkað eftir kyni og bekk. Þar sést að hlutfall nemenda í yfirþyngd er hæst í 7. bekk (23%), hjá stúlkum í 7. bekk (24%) og þar á eftir hjá drengjum í 7. bekk (22%) og stúlkum í 4. bekk (22%). Hæsta hlutfall nemenda með offitu sést í 9. bekk (14%), en hjá drengjum í 9. bekk (17%) og þar á eftir hjá drengjum í 7. bekk (16%). Hjá stúlkum er hlutfallið jafnt í 1., 7. og 9. bekk með 10% og 9% í 4. bekk og er það lægra en hjá drengjum. Í töflu 2 sést að þegar athugað var hvort munur væri á þyngd nemenda eftir þáttum sem tengdust mataræði kom í ljós að eini þátturinn í þeim flokki sem hefur tölfræðileg marktæk áhrif er hvort borðaður er morgunmatur eða ekki (p=0,004). Marktækt færri nemendur sem borðuðu morgunmat voru í yfirþyngd eða með offitu en þeir sem ekki borðuðu morgunmat. Inntaka á lýsi/D-vítamíni (p=0,407) og tíðni gosdrykkjaneyslu í 4. bekk (p=0,483) og gos- og orkudrykkjaneyslu í 7. og 9. bekk (p=0,501) hafði ekki marktæk áhrif á þyngd. Tafla 3 sýnir mun á þyngd nemenda eftir þáttum sem tengjast hreyfingu. Í ljós kom að íþróttaiðkun/regluleg hreyfing hjá nemendum í 7. og 9. bekk (p=0,013) tengist marktækt minni NIÐURSTÖÐUR drekka gos-/orkudrykk sjaldnar en x1/viku, ganga/hjóla í skólann, æfa íþróttir eða stunda hreyfingu í 60 mínútur á dag, fari að sofa kl 21 eða fyrr í 1. og 4. bekk, fara að sofa kl 22 eða fyrr í 7. og 9. bekk. Greining gagna Lýsandi og ályktunartölfræði var notuð. Tíðnitölur og hlutföll voru notuð við lýsingu á úrtakinu. Kíkvaðratpróf var notað til að kanna hvort ákveðnir lífsstílsþættir hafi áhrif á það hvort nemendur eru í yfirþyngd eða offitu. Í tölfræðiútreikningum voru nemendur í ofþyngd og með offitu settir í einn hóp og kannað hvort fylgni væri milli lífsstílsþátta og þess að vera í yfirþyngd eða með offitu. Til að skoða nánar tengsl milli líkamsþyngdar og lífsstílsþátta var búinn til kvarði þar sem lagður var saman fjöldi jákvæðra lífsstílsþátta sem nemendur uppfylltu og framkvæmd tvíkosta aðhvarfsgreining þar sem yfirþyngd og offita var fylgibreyta en fjöldi jákvæðra lífsstílsþátta var frumbreyta. Marktektarmörk voru miðuð við p=0,05. Við skráningu og úrvinnslu gagna var töflureiknirinn Excel og tölfræðiforritið SPSS (útgáfa 27) notað. Siðfræði Leyfi fyrir rannsókninni fékkst frá Vísindasiðanefnd. Engin persónuauðkenni voru í þeim gögnum sem notuð voru í rannsókninni. Ritrýnd grein | Peer review
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.