Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 110
110 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 98. árg. 2022
Holdafar grunnskólabarna
Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að umtalsverður
fjöldi barna á Suðurnesjum er of þungur (20%) og of feitur
(12%) og er hlutfall of feitra mun hærra en meðaltalið hefur
verið á landsvísu en skólaárið 2018-2019 var það 23% of
þungir og 6% of feitir (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins,
2019). Þegar horft var til tengsla lífsstíls nemendanna við
yfirþyngd og offitu voru mest tengsl í 9. bekk þar sem að
fylgja ráðleggingum dró úr líkum á offitu. Einnig kom í ljós að
nemendur sem borðuðu morgunmat voru marktækt sjaldnar
of þungir eða feitir og er það í samræmi við rannsóknir
sem hafa sýnt fram á sterk tengsl milli þess að borða ekki
morgunmat og að vera í yfirþyngd eða með offitu (Koca o.fl.,
2017; Okada o.fl., 2018). Rannsókn Santos o.fl. (2019) sýndi
fram á að börn sem stunduðu einhvers konar hreyfingu
voru í mun minni hættu á að vera of feit en börn sem ekki
stunda neina hreyfingu. Í þessari rannsókn var slíkt samband
eingöngu marktækt hjá nemendum í 7. og 9. bekk. Þá kom
fram í þessari rannsókn að nemendur sem náðu viðmiðum
um hvíldartíma voru marktækt ólíklegri til að vera of þung
eða feit. Er það samhljóma rannsóknum Litsfeld o.fl. (2020) og
Weihrauch-Blüher o.fl. (2019) sem fundu marktækt samband
milli of lítils svefns og offitu hjá börnum á öllum aldri. Hins
vegar sýndi rannsókn Vöku Rögnvaldsdóttur o.fl. (2018) að
eingöngu 19,8% stúlkna og 5% drengja ná viðmiðum um
ráðlagðan hvíldartíma. Það er því ljóst að mikill meirihluti
íslenskra barna fær ekki nægan svefn sem er áhyggjuefni og
nauðsynlegt er að bregðast við því.
Ekki kom fram marktækur munur á þyngd eftir gosdrykkja-
neyslu sem er ólíkt því sem kom fram í rannsókn Bes-Rastrollo
o.fl. (2016) sem sýndi bein tengsl á milli neyslu á sykruðum
gosdrykkjum og offitu. Auk þess komu ekki fram marktæk
tengsl milli Lýsis- og D-vítamíninntöku og offitu en rannsókn
Giannios o.fl. (2018) gefur til kynna að D-vítamíngjöf gæti
dregið úr offitu barna.
Margir samverkandi þættir hafa áhrif á ofþyngd hjá börnum og
því brýnt að samfélagið í heild í samstarfi við skólana, einblíni
á orsakir vandans með áherslu á bætt mataræði og aukna
hreyfingu sem talið er vega þyngst í baráttunni við að draga úr
yfirþyngd og offitu (Sahoo, o.fl., 2015). Börn læra það sem fyrir
þeim er haft og á það einnig við um heilbrigðan lífsstíl. Talið
er að ef foreldrar hvetja til heilbrigðra lifnaðarhátta heima
fyrir sé það stærsti áhrifavaldurinn og muni draga verulega úr
ofþyngd barna og stuðla að heilbrigðara samfélagi í heild. Í
rannsókninni kom fram að ólíklegra er að nemendur í 9. bekk
fari eftir leiðbeiningum um heilsuhegðun en þeir yngri og
skýrist það líklega af því að foreldrar hafa þá ekki eins mikið
um hegðun að segja og hjá yngri nemendum.
Með samræmdri skráningu eins og Ískrá skapast möguleikar
til að fá upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu
fyrir öll börn á grunnskólaaldri og er því mikilvæg forsenda
gæðaþróunar þar sem grundvöllur skapast til að meta
gæði þjónustunnar. Einnig veitir hún góða yfirsýn yfir
starf skólahjúkrunarfræðinga og einstaklinginn sem nýtur
þjónustunnar og skapar samfellu í þjónustunni.
Rannsóknin gefur til kynna ákveðnar vísbendingar um
lífsstílsþætti sem orsakað geta aukningu á yfirþyngd og offitu
UMRÆÐA
barna, einkum hjá börnum í efri bekkjum grunnskóla.
Auk þess gefa niðurstöðurnar tilefni til að skoða hvort og
hvar hægt sé að bæta þjónustu við börn í grunnskólum
landsins. Grunnskólar gegna mikilvægu hlutverki hvað
varðar að bregðast við þróun á offitu grunnskólabarna með
því að stuðla að heilsusamlegri næringu, efla hreyfingu
og sinna almennri heilbrigðisfræðslu (WHO, 2018) og
gegna skólahjúkrunarfræðingar þar lykilhlutverki. Nýta
má þessa þekkingu og leggja áherslu á aukna fræðslu
um forvarnargildi þeirra lífsstílsþátta sem sýna tengsl við
yfirþyngd og offitu, einkum í eldri bekkjum grunnskóla.
Helsti styrkleiki rannsóknarinnar felst í því að gögn fengust
um nánast alla nemendur úr umræddum árgöngum eða
1.402 af 1.430 nemendum sem samsvarar svarhlutfalli
upp á 98%, sem er því nánast allt þýðið. Einnig er
styrkleiki að gögnum er safnað af fagfólki og sama
aðferð til gagnasöfnunar er notuð alls staðar. Takmörkun
rannsóknarinnar er að einungis er gerð ein mæling hjá
hverjum bekk og því ekki hægt að draga miklar ályktanir
um orsakasamhengi af niðurstöðum. Til þess er frekari
rannsókna þörf. Auk þess er það veikleiki í rannsókninni
að líkamsþyngdarstuðull er takmarkaður mælikvarði á
holdafari einn og sér en hann gefur ákveðna vísbendingu.