Árbók frjálsíþróttamanna - 01.05.1944, Qupperneq 92
Bæjakeppni Rvíkur og Vestm.eyja.
Bæjakeppnin milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fór frain
í fyrsta sinni árið 1936 14. og 15. ágúst í Vestmannaeyjum
og var fyrir fullorðna. Þá fóru leikar þannig að Reykjavik
vann með 13591 stig á móti 13372. Eins og kunnugt er, voru
afrek keppenda reiknuð til stiga eftir finnsku stigatöflunni
og réði það úrslitum, hvor bærinn hlaut hærri stigatölu sam-
anlagt. Hæstu einstaklingsstigatölu hlaut Daniel Loftsson
Vestm. 1757 stig (Keppti i þrem greinum, en i fleiri íþrótta-
greinum mátti eigi keppa).
Bæjakeppni drengja fór einnig fram 1936, dagana 10. og
11. sept. í Reykjavík. Úrslit urðu þau, að Rvík vann með 11201
st. gegn 11120. Hæstu stigatölu einstaklinga hlaut Vigfús Ólafs-
son Vestm. 1077 stig (Vann 2 greinar og varð annar í þeirri
þriðju).
1937 fór keppni fullorðinna fram í Reykjavík dagana 27.
og 28. júlí með þeim úrslitum, að Reykjavík vann með 15647
móti 11673. Hæstu einstaklings stigatölu hlaut Sigurður Sig-
urðsson Vestmannaeyjum, 2187 (vann sínar þrjár greinar).
Drengjakeppnin þetta ár var haldin i Vestmannaeyjum 22.
og 23. ág. og unnu Vestmannaeyingar eftir harða keppni með
11298 gegn 11236. Hæstu stigatölu einstaklinga hlaut Jóhann
Bernhard úr Reykjavík, aRs 1851 stig. (Vann allar sínar
greinar).
1938. Keppni fullorðinna fór fram í Vestmamnnaeyjum (3.
—4. ágúst). Vann Reykjavík keppnina i þriðja sinni, hlaut
14335 stig gegn 12315 stigum. Hæstu einstaklingsstigatölu hlaut
Kristján Vattnes, Reykjavík 1965 stig (vann þrjár greinar).
Keppni drengja fór fram í Reykjavík 17.—22. ágúst og
laulc með knöppum sigri Reykvíkinga, fengu þeir 11976 stig
gegn 11848 stigum. Hæstu stigatölu einstaklinga hlaut Sigurð-
ur Finnsson, Reykjavík, 2075 stig (vann þrjár greinar).
Og þar með er sögu þessarar bæjakeppni Reykjavikur og
Vestmannaeyja í frjálsum íþróttum lokið, a. m. k. í bili, en það
er ósk flestra ef ekki allra íþróttamanna hér i Reykjavík, að
þess verði ekki langt að bíða að bæjakeppnin hefjist á ný.
J. B.
88