Úrval - 01.06.1942, Qupperneq 7
LESHRAÐI
5
heilla setninga með einu tilliti
— finna samhljóm orðanna.
Hverjum meðalmanni er í lófa
lagið að ná 800 til 1000 orða
hraða á mínútu í skyndilestri.
I öðru lagi hinn normali les-
hraði yðar. Hann ætti ekki að
vera minni en 350 orð á mínútu,
helzt 500. Ef hugur flýgur á
undan lestrinum, þá lesið þér
ekki nógu hratt. Lesturinn á að
geta fylgt huganum eftir.
Þriðji leshraðinn er svo sá,
sem þér notið, þegar þér eruð
að kryfja eitthvert mál til
mergjar, beita gagnrýni eða
njóta stíls og frásagnarlistar.
Sá hraði getur verið allt niður í
fimm eða sex orð á mínútu. Til
dæmis, þegar þér eruð að lesa
fréttaskeyti, sem farið hefir í
gegnum stranga ritskoðun, og
viljið kannske vega og mæla
hvert orð, til að komast að raun
um, hvort nokkur hulin mein-
ing sé falin bak við þau, sem
fréttaritarinn hafi viljað koma
í gegnum ritskoðunina. Eða þá
torskilið kvæði eftir Longfellow,
leikrit eftir Bernhard Shaw, eða
tyrfna grein á tæknimáli.
Fyrir skömmu fékk ég bréf
frá föður eins af nemendum
mínum. „Þegar sonur minn kom
heim,“ skrifaði hann, „prófaði
hann alla fjölskylduna í hrað-
lestri og fór svo að kenna okkur
þá lesaðferð, sem hann hafði
lært í skólanum. Undanfarinn
mánuð hefir leshraði minn auk-
izt úr 290 í 550 orð á mínútu,
og ég les nú næstum helmingi
meira af góðum bókum og tíma-
ritum en ég gerði áður. Ég
þakka yður fyrir að hafa fært
gömlum kárlfauski heim sann-
inn um það, að hann sé ekki enn
orðinn of gamall til að læra.“
Brezk flugvél varpaði fyi’ir nokkru sprengju á þýzkt vopnabúr
við bæinn Skive í Danmörku og sprakk það i loft upp. Eina
tilkynningin, sem birt var um þetta, var frá þýzka útbreiðslu-
málaráðuneytinu og var á þá leið, að ekkert tjón hefði orðið,
aðeins ein kýr orðið fyrir sprengjunni.
„Skive Folkeblad“ birti samvizkusamlega þýzku tilkynninguna,
en bætti við, svona til að gera fréttina fyllri:
„Eldurinn i kúnni geisaði i fjóra daga.“
Úr „This Week“.