Úrval - 01.06.1942, Síða 24
22
ÚRVAL
sem hlutu nokkrar milljónir að
launum fyrir dansinn.
Var þessi önnur æska Arthurs
hamingjusöm? Ég efast um
það. Sonur hans, sem var sextán
ára, þegar þetta brjálæðistíma-
bil hófst, lenti í félagsskap, sem
vandi komur sínar í næturklúbb-
inn „Johnny", en hann var mið-
stöð f jölmenns hóps kynvillinga.
Þar lenti hann í höndunum á
fjárplógsmönnum og einn mild-
an vormorgun árið 1924 skaut
hann sig. Dóttir Arthurs giftist
lækni, sem seinna var dæmdur
fyrir ólöglegar fóstureyðingar.
(Á þessum árum voru 480 mála-
ferli sömu tegundar á döfinni í
Berlín, og 190 læknar misstu
réttindisín). Yngrasyni Arthurs
leiddist svo skólavistin, að hann
strauk með stúlku til St. Moritz.
Tveim árum seinna, þegar mar-
tröð gengishrunsins var hjá lið-
in, frétti ég, að hann væri á
munaðarleysingjahæli. Foreldr-
ar hans dóu bláfátæk.
Fjölskylda Rudolfs Bauer
bókhaldara lifði á launum hans.
Á gengishrunsárunum var það
sama og sífelld barátta við
hungur. Ég sé hann enn fyrir
mér, litla bókhaldarann, háls-
mjóan, með lonjettur á þunnu
nefinu, starandi nærsýnum
undrunaraugum fram fyrir sig,
eins og hann botnaði ekkert í
öllu því, sem var að gerast í
kringum hann.
Á hverjum klukkutíma hækk-
aði verðlag um 25 til 50%. Ru-
dolf fékk launin sín á hverjum
laugardegi; á mánudegi voru
þau orðin verðlaus. Þeir sem
voru séðir, eyddu öllu sínu kaupi
samdægurs, keyptu allt, sem
þeir gátu. Á mánudag gátu þeir
selt það með geipilegum hagn-
aði. En Rudolf var ekki kaup-
maður, heldur bókhaldari. Á
leiðinni heim með strætis-
vagninum — farið kostaði
250.000.000 mörk — leit
hann í kringum sig með var-
færni, af ótta við að vasaþjófar
stælu frá honum billjónunum,
sem fylltu vasa hans. Þegar
Rudolf var kominn heim, vannst
konunni hans naumlega tími til
að kaupa eins dags forða fyrir
vikukaupið.
Rudolf var langt á eftir tím-
anum. Fyrsta áfallið hlaut hann,
þegar hann missti föðurarf sinn.
Faðir hans, sem átt hafði iitla
bókabúð, lét eftir sig tuttugu
þúsund mörk handa tveim son-
um sínum, Rudolf og Emil. —
Rudolf lagði sitt fé í banka.