Úrval - 01.06.1942, Síða 50
48
tJRVAL
semi kvenna, er að leghálsinn
lokast af slími, svo að sáðfrum-
urnar ná ekki að komast upp í
legið. Þetta er venjulega auð-
velt að lagfæra.
Stundum geta læknarnir verið
í vafa um, hvort nokkurt egg
losni frá eggjastokkum kon-
unnar.
Þar eð ómögulegt er að finna
eggið sökum smæðar þess (tæp-
lega sýnilegt með berum aug-
um) verður læknirinn að grípa
til óbeinna rannsókna. Hann
veit að frumurnar, sem klæða
innan kynfæri konunnar, taka
breytingum þegar egg losnar,
og að líkamshitinn hækkar.
Hann veit, að breyting verður á
kynhormónum í blóðinu. Með
nákvæmri athugun á þessum
fyrirbærum, getur hann skorið
úr, hvort egg hefir losnað í
samræmi við eðlilegt kynferðis-
líf. En viðfangsefni læknisins
getur stundum verið mjög flók-
ið, og snertir ef til vill bæði
hjónin. Sem dæmi má nefna
ung hjón frá Californíu, sem
langaði mjög til að eignast af-
kvæmi. Rannsókn leiddi í ljós,
að maðurinn hafði óeðlilega lítil
efnaskipti og var illa á sig kom-
inn. Hann fékk skjaldkirtils-
hormón, sem jók efnaskiftin og
stórbætti allt heilsufar hans.
Honum var líka ráðlagt að
stunda íþróttir og önnur
áreynslustörf. Konan var miklu
örðugri viðfangs. Eggjaleiðarar
hennar voru lokaðir. Hún hafði
svo mikla legskekkju, að skurð-
aðgerð þurfti til þess að lagfæra
hana. Hálft annað ár þurfti til’
alls þessa, en að lokum varð
konan barnshafandi, og hin
ungu hjón urðu ákaflega ham-
ingjusöm.
Hlutfallið milli góðrar heilsu
og frjósemi verður aldrei of-
metið. Það gefur skýringu á
mörgum undarlegum fyrirbrigð-
um. Til eru mörg dæmi þess, að
hjón, sem gefið hafa frá sér alla
von um að eignast afkvæmi,
hafa tekið fósturbarn, en svo
eignast sjálf barn eftir eitt eða
fleiri ár. Almenningi kemur
þetta undarlega fyrir sjónir, en
læknarnir furða sig ekkert á
þessu. Aukinn áhugi fyrir alls-
konar leikjum og hreyfingu
vegna fósturbarnsins, hefir bætt
heilsufar foreldranna og aukið
lífsþrótt þeirra.
Algengt er það, að hjón, sem
ekki varð barna auðið, hafa
skilið og gifzt aftur og þá getið
börn hvort í sínu lagi með hin-
um nýju mökum sínum. Skýr-