Úrval - 01.06.1942, Síða 60
58
ÚRVAL
hermannanna, en hann getur
ekki séð hina einstöku hermenn.
Hann veit, að ef hann varpar
sprengju, getur hann drepið
fleiri eða færri í fylkingunum.
En hann getur ekkert sagt um
einstaklingana.
Eitthvað svipað þessu var að-
staða læknanna í baráttunni við
þessa sýkla.
Eitt af því fyrsta, sem sýkla-
fræðingarnir gerðu, þegar þeir
fengu hina nýju smásjá, var að
setja undir hana sex tegundir
af áður óþekktum staf-sýklum
og kúlu-sýklum.
Þeir uppgötvuðu þá, sér til
mikillar undrunar, að utan um
þessa sýkla var harðgerð húð,
einskonar fitulag, sem var innra
frumslíminu (protoplasm) til
hlífðar. Þetta var þýðingar-
mikil uppgötvun. Þarna var
fengin skýringin á því, hvers
vegna þessir sýklar — þeirra á
meðal taugaveiki- og lungna-
bólgusýklarnir — voru líkaman-
um svona erfiðir viðfangs. Þeir
lifðu góðu lífi, þrátt fyrir lát-
lausar árásir hvítu blóðkorn-
anna.
Þeir vissu nú, að ef þeim tæk-
ist að finna efni, sem gæti leyst
upp þetta fitulag, mundi hið
viðkvæma frumslím fljótlega
deyja. Allar líkur bentu þannig
til, að það væri þessi eiginleiki
,,sulfa“sambandanna, sem dræpi.
lungnabólgusýkilinn svo fljótt.
Sýklafræðingarnir gerðu aðra
uppgötvun. Þeir sáu, að sumir
sýklar hafa langa hreyfianga,
sem þeir geta synt með. Með
þessu var fengin skýring á því,
hvers vegna sumir sýklar breið-
ast eins og eldur í sinu út um
allan líkamann, en aðrir setjast
aðeins að á einum stað.
Með þessari nýju smásjá eni
vísindin nú sem óðast að leiða
fram á sjónarsviðið heila hópa
af sýklum, sem áður voru hjúp-
aðir hulu smæðarinnar. Móli-
kýlin hafa verið dregin fram í
dagsljósið og myndir af þeim í
200.000 faldri stærð hafa verið
sýndar á kvikmyndatjaldi. Það
er líka fræðilegur möguleiki
fyrir því, að hægt sé að sjá
atómið í þeim rafeindasmásjám,
sem þegar hafa verið smíðaðar,
þótt enn hafi það ekki tekizt.
En miklar líkur eru til, að það
megi takast, þegar smásjáin,
sem verið er að búa til í Stan-
ford er fullgerð.
Rafeindasmásjáin er svo öfl-
ug, að það er enginn hægðar-