Úrval - 01.06.1942, Page 75
LEYNDARDÖMUR MARZ
73
um, þá væri þeim tryggð fæða
og vatn. Það benda allar líkur
til, að hinar hvítu hettur heim-
skautanna hlíti sömu lögmálum
og ísbreiðurnar á heimskautum
jarðarinnar, þ. e. minnki á sumr-
um og stækki á veturna.
Hér á jörðinni þekkjum við
dæmi til að líf geti þrifizt undir
hinum óhagstæðustu skilyrðum.
Hve miklir hæfileikar okkar til
að laga okkur eftir kringum-
stæðunum eru, vitum við ekki,
en við höfum ástæðu til að ætla,
að þeir séu allmiklir.
Hvaða hugmynd getum við
gert okkur um útlit Marzbúans,
ef hann er til? Vegna súrefnis-
skorts verður hann að hafa
miklu stærri lungu og hjarta en
við. Til þess að hindra útgufun,
mætti engin öndun eiga sér stað
um húðina (hundar hafa þannig
húð). Hann yrði að vera all-
miklu stærri en við til að rúma
svo stór lungu og hjarta, en það
yrði honum ekki til neins
trafala.
Hlutur á yfirborði Marz vegur
ekki nema 38% af því, sem hann
mundi vega á yfirborði jarðar.
Það þýðir, að þótt Marzbúar
væru tveimur og hálfum sinnum
stærri en við, myndu þeir ekki
vera þyngri. Eða ef þeir væru á
stærð við okkur, myndu þeir
vera fljótari á fæti en við og
nota samt minni orku.
Ef við göngum út frá því, að
mynd sú, sem við höfum hér
dregið upp af ástandinu á Marz,
sé ekki fjærri lagi, eru horfurn-
ar fyrir Marzbúana ekki sem
glæsilegastar. Marz virðist vera
deyjandi heimur — vera að
kulna út. Súrefnið er að mestu
orðið bundið í yfirborðinu, og
af því að stjarnan er svo tiltölu-
lega lítill, er gufuhvolfið mjög
þunnt.
Vatn er, að því er virðist, í
allra naumasta lagi. Hitinn er
lítill og hitabreytingar miklar.
Marzbúar munu tæplega geta
byggt skurði, sem væru sýni-
legir af jörðinni.
Niðurstaðan af þessari grein
verður þá því miður sú, að við
vitum harla lítið um líf og lífs-
skilyrði á Marz.
<X)^CV3
Kunningi Voltaires sat á tali við hann: „Það er faliegt af
þér, að tala svona vingjarnlega um Monsieur X, þegar hann.
talar svona illa um þig.“
„Ef til vill skjátlast okkur báðum,“ sagði Voltaire.