Úrval - 01.06.1942, Page 100
"98
ÚRVAL
næturlif blómstrar, og ferða-
menn, sem koma frá stríðslönd-
unum, halda, að þeir séu komnir
til Paradísar. En það hangir ein-
hver ósýnileg líkblæja yfir borg-
inni. Ferðamaðurinn ekur út í
friðsælu Estorilstrandarinnar
fáeinar mílur fyrir utan borg-
ina. Lágar drunur heyrast í
fjarska. Hann heldur, að það
séu þrumur, en nokkrum dög-
um seinna kemur í ljós, að skip
hefir verið skotið niður skammt
undan ströndinni og eitt eða
tvö hundruð manns farizt. Allir
láta sér á sama standa. Stjórn-
málamenn, flóttamenn og kaup-
sýslumenn eru allt of önnum
kafnir við lukkuhjól spilavít-
anna.
Starfsemi vændiskvenna er
einhver blómlegasta atvinnu-
grein borgarinnar. Hún heldur
áfram dag og nótt, fyrir opnum
tjöldum og óhindruð, og er sá
meginfarvegur, sem erlendur
gjaldeyrir streymir um inn í
viðskiptalíf borgarinnar.
Meginþorri alþýðunnar lifir
þó utan við þetta. Sú skoðun er
almenn meðal hennar, að ef
Þjóðverjar vinni stríðið, verði
hlutskipti hennar jafnvel enn
verra en það er nú, þótt naum-
ast sé hægt að hugsa sér,
hvernig slíkt megi verða. Ekk-
ert er eins ódýrt í Lissabon og
vinnuaflið. Ef verkamaður deyr
af slysförum við vinnu sína, fær
ekkja hans sem svarar 50 krón-
um í dánarbætur. Loftskeyta-
menn á portúgölskum skipum,
sem fá um tvö hundruð krónur
á mánuði, hafa orðið að sætta
sig við kauplækkun, þó að far-
gjöld hafi hækkað um 600 pró-
sent. Þjóðarfæða Portúgala,
saltfiskur og hrísgrjón, er ófá-
anleg nema stöku sinnum í smá-
skömmtum, og verð á öllu hefir
hækkað gífurlega.
En ferðamaðurinn getur feng-
ið allt, ef hann hefir nóga pen-
inga. Appelsínan kostar 70 aura
og amerískar sígarettur 2.50
pakkinn, sem er hér um bil eins
mikið og daglaun lögregluþjóns.
Amerísk tímarit eru mikið
keypt, þó að þau séu dýr, því
að Ameríka er hið gullna
draumaland. Fólkið trúir því, að
einhvern tíma og einhvern veg-
inn muni Ameríka verða til að
bjarga heiminum. Tötralegur
skóburstari, sem burstaði einu
sinni skóna mína, vildi ekki taka
neina borgun. „Þér borgið mér
næst,“ sagði hann. ,,í þetta
skipti geri ég það fyrir Roose-
velt forseta.“