Úrval - 01.06.1942, Síða 104
102
URVAL
Orðið ,,óframkvæmanlegt“
þekkist ekki meðal vísinda-
manna. Eitt af því, sem árum
saman var talið óframkvæman-
legt, var að tengja saman
gler og málm, því að þessi tvö
efni þenjast misjafnlega út við
hita og losna því úr tengslum.
En ekki alls fyrir löngu kom til
mín Dr. Albert Hull, sem vinnur
á rannsóknastofu minni, og
tjáði mér, að hann hefði ráðið
gátuna. Honum hafði tekizt að
setja saman málmblöndu, sem
þandist nákvæmlega eins mikið
út við upphitun og gler. Og nú
getum við tengt þessi tvö efni,
málm og gler, en með því verður
framleiðsla ýmissa nytsamlegra
hluta betri og ódýrari en áður
hefir þekkst.
Eitt sinn kom til okkar mað-
ur og vildi hann skila aftur raf-
magnsmótor, sem hann hafði
fengið hjá okkur, því að vírinn
í honum væri óeinangraður.
Okkur gekk erfiðlega að sann-
færa hann um að svo væri ekki,
en gátum reyndar ekki áfellst
hann fyrir að vera tortrygginn.
í heilan mannsaldur höfðu eng-
ar nýungar verið gerðar á sviði
einangrunar, og höfðum við
orðið að notast við ull og pappír
og annað þess háttar, sem var
fyrirferðarmikið og reyndist
illa. Einangrunarefni eru nú
unnin úr kolum og lími og sitja
þau svo þétt, að engu er líkara
en að þau séu hluti af vírnum.
Það má fletja vírinn og hand-
leika eftir vild án þess að ein-
angrunin fari af. Þessi forláta.
einangrun er nú mjög að ryðja.
sér til rúms.
Árið 1916 voru í Ameríku að-
eins 19 tilraunastofur í þágu
iðnaðarins, en eru nú nálægt.
2000. Þar starfa nú færustu
vísindamenn og sérfræðingar
þjóðarinnar að ýmsu því, sem
henni má að gagni koma í styrj-
öldinni, en ekki er að svo stöddu
heimilt að gera heyrum kunn-
ugt afrek þau, sem þar eru
unnin.
Mér hefir oft flogið í hug,
hvað gera á við allt gull heims-
ins ef það verður verðlaust, eins
og margir hagfræðingar ætla.
Reynist sú skoðun rétt, þá mun
sá maður, sem finnur nothæfni
þess, ekki þurfa að bera kvíð-
boga fyrir framtíðinni.
Að því mun ef til vill reka að
matvæli verði seld í silfur-dós-
um og hefir vísindamaður einn,
sem ég þekki, smíðað nokkrar
slíkar dósir. Þetta er ekkióhugs-
andi á stríðstímum a. m. k., því