Úrval - 01.06.1942, Qupperneq 107
ÞÚSUNDIR VÍSINDAMANNA AÐ BAKI HITLERS
105
ar 1938, en Haushofer sagði, að
til þess hefði það hvorki vilja
né getu, og reyndist það rétt.
Haushofer taldi, að leggja mætti
Pólland að velli á 18 dögum, og
vísaði á bug andmælum von
Brauchitsch, sem óttaðist, að
rigningar og for myndu tefja
framsókn hinna vélknúnu tækja
þýzka hersins. Einnig var það
að ráðum hans, að herferðin var
hafin gegn Noregi. Þegar styrj-
öldin brauzt út, vildi v. Brauch-
itsch ráðast að Frökkum þegar
í stað, en Haushofer taldi ráð-
legra að bíða þar til Frakkland
væri nægilega lamað vegna
áróðurs og innbyrðis sundrung-
ar. Þá var og hernaðaraðgerð-
um í Afríku og á Balkanskaga
slegið á frest, þar til Haushofer
taldi rétt að hefjast handa.
Það var dr. Haushofer, sem
lagði grundvöllinn að stefnu
Hitlers, eins og fyrr segir. Og
það var reyndar hann, sem las
fyrir kaflann um utanríkismál-
in í „Mein Kampf“, og Hitler
hefir fylgt út í yztu æsar.
Það er því ekki að undra,
að þegar Hitler komst til valda
1933, lét hann Haushofer hafa
allt það fé til umráða, sem hann
taldi sig þurfa. Haushofer hafði
sannfært leiðtogann um, að ef
Þýzkalandi ætti að auðnast að
rísa upp að nýju, voldugt og
sterkt, þá yrði stjórn þess að
þekkja til hlítar styrk og van-
mátt andstæðinganna, og haga
bardagaaðferð sinni í samræmi
við það. „Geopolitische Institut"
hefir rannsókn þessara mála
með höndum. Hershöfðinginn
krafðist þess, að stofnuninni
yrði látið í té allur sá fróðleik-
ur, sem leyniþjónustan leiddi í
Ijós, og að útbreiðslumálin lytu
yfirstjórn hennar.
Haushofer réð til sín yfir eitt.
þúsund sérfræðinga á öllum
sviðum, í f jármálum, hermálum,
sálfræði, læknisfræði, landa-
fræði o. s. frv. Þessir menn
rannsaka og vinna úr öllum
þeim gögnum, sem frá leyni-
þjónustunni koma.
I „Geopolitiche Institut“ er
að finna upplýsingar um allt,
sem máli skiptir í lífi allra
þjóða, hernaðarlegs, fjárhags-
legs og andlegs efnis. Yfirvof-
andi hungursneyð í Kína, mynd-
un nýs stjórnmálaflokks í
Argentínu, trúaráhugi Panama-
búa, persónuleiki og áhugamál
Batista hershöfðingja, mútu-
þægni tollvarðanna í New York,
skoðanir mikils metinna ame-
rískra verklýðsforingja — allt