Úrval - 01.06.1942, Qupperneq 121
ÖRLAGASTUND ENGLANDS
11&
Þess vegna vildu þeir helzt allt-
af vera að.
í ágústlok breyttu Þjóðverj-
ar um aðferð. London varð or-
ustuvöllur og við flýttum okkur
þangað aftur. Stórborgin hafði
búið sig undir eldhríðina eftir
föngum og beið nú reiðubúin.
Hugarfar fólksins, trú þess,
kjarkur og auðmýkt hafði djúp
áhrif á mig. Það var eins og
því finndist það standa augliti
til auglitis við guð. Englending-
ar sjálfir mundu ekki hafa orð-
að þetta þannig. Þeir nota ekki
svo sterk orð, en eigi að síður
minnti umhverfið í hátíðleik sín-
um og alvöru á guðsþjónustu.
London hafði fengið frið í sálu
sinni. Hún var róleg og í and-
legu jafnvægi.
Veðrið var fagurt laugardag-
inn 7. september. Eftir hádegið
ákváðum við Jimmy Sheean, Ed
Murrow og ég að aka niður
Themsána og austur fyrir borg-
ina. Við vissum, að skilyrðin til
árása voru hin ákjósanlegustu,
og við vildum því vera fyrir
utan borgina, því að það er
ómögulegt að fá fulla yfirsýn
yfir stórfellda loftárás, ef mað-
ur er inni í borginni. Við fórum
niður í gegnum Limehouse og
Stepney og yfir ána. Við ókum
fram hjá túni, námum þar stað-
ar og lögðumst niður undir
stórri heysátu. Sólin skein í
heiði.
Við höfðum ekki beðið lengi,.
þegar loftvarnaflauturnar hófu
væl sitt og skothríðin byrjaði.
Deild brezkra orustuflugvéla
kom í ljós og stefndi til strand-
ar. Brátt heyrðum við orustu-
gnýinn yfir höfðum okkar. Þeg-
ar við litum upp, sáum við sveit
þýzkra sprengjuflugvéla fljúga
oddaflug í mikilli hæð, og uppi
yfir henni enskar og þýzkar or-
ustuflugvélar í áköfum bardaga.
Kúlnabrotum tók að rigna allt
í kringum okkur, og við leituð-
um skjóls í skurði.
Brezku flugvélarnar urðu að
snúa aftur til að taka benzín,
og á meðan sendu Þjóðverjar
aðra sveit sprengjuflugvéla með
24 flugvélum og síðan þá þriðju
með 36 flugvélum. Þær flugu í
mikilli hæð, í reglulegum fylk-
ingum og glitruðu eins og stál-
fuglar í kvöldsólinni. Brátt
heyrðum við drunur af ógur-
legum sprengingum inni í borg-
inni. Við sáum voldugar reykj-
arsúlur rísa upp, og svo heyrð-
um við Þjóðverjana snúa heim.
aftur, með brezku orustuflug-
vélarnar á hælunum, sem nú