Úrval - 01.06.1942, Side 132

Úrval - 01.06.1942, Side 132
Fylgt úr hlaði. Við lifum á tímum örlagaþrunginna og skjótra atburða. Hver dagur á sinn stórviðburð. Bergmál sumra þeirra berst samdæg- urs um víða veröld á öldum útvarpsins eða í dægurfréttum dag- blaðanna. Aðrar fæðast ekki með eins miklum bumbuslætti eða vopnagný, en orka þó ef til vill á sinn hátt engu minna á líf okkar mannanna. Það er hlutverk dagblaðanna að henda á lofti viðburði dagsins og skýra þá og skilgreina eftir því sem kringumstæður og tími leyfa. Áhrifavald þeirra er mikið, en aðstaða þeirra til mats á viðburðunum oft erfið. Segja má, að þar sem starfi dagblaðanna lýkur, taki hlutverk tímaritanna við. Það hlutverk er tvíþætt. Annar þátturinn er fólginn í því að fara í eins konar eftirleit, þegar dagblöðin hafa lokið smalamennsku sinni, og draga fram í dagsljósið þá við- burði, sem létu svo lítið yfir sér, að þeir fóru framhjá arnfráum augum blaðamannanna, enda þótt þeir bæru í sér frjókom örlagaríkra áhrifa. Hinn þátturinn er sá, að draga í dilka það sem blöðin hafa smalað, vinsa úr þá viðburði, sem hafa meira en augnabliksgildi, en láta hina falla í dá gleymskunnar. Eins og gefur að skilja, hefir misjafnlega tekizt að rækja þetta hlutverk. Engu einstöku tímariti er sú gæfa gefin að sjá um heim allan. Útsýnið er háð takmörkunum þess starfsliðs, sem tímaritið ræður yfir, og efnisvalið áhugamálum þess. Þannig fá tímaritin hvert sinn svip, verða hvert um sig ef til vill nokkuð einhæf, en rækja þeim mun betur sitt starfssvið. Nú á síðari árum hafa víða um heim, en einkum þó í Ameríku, risið upp ný tímarit, sem í ýmsu víkja frá þessu hefðbundna tímaritsformi. Þessi tegund tímarita hefir orðið svo vinsæl, að eitt þeirra er nú orðið langútbreiddasta tímarit í heimi. Efnis- val þeirra er frábrugðið því, sem tíðkast hjá öðrum tímaritum að því leyti, að í þeim birtist að heita má eingöngu það, sem komið hefir áður í blöðum, tímaritum eða bókum. Þetta kann í fljótu bragði að virðast vafasamur kostur. En reynslan hefir þó sýnt annað. Allir, sem eitthvað lesa að ráði, munu hafa veitt því eftirtekt, Framhald innan á kápunnL STEINDÓRSPRENT H. F.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.