Úrval - 01.12.1942, Side 4
2
■crval
raddskránni. Hljómdrápan ferð-
aðist svo í flugvél frá Rússlandi
til Teheran, síðan í bifreið til
Kairo og áfram í flugvél til
Bandaríkjanna.
Þegar maður sér Shostako-
viteh í fyrsta sinn, á maður
harðla bágt með að trúa því, að
svo væskilslegur maður ásýnd-
um skuli geta framleitt allt
þetta ólgandi tónaflóð. Það er
eitthvað barnslegt í fari þessa
grannvaxna og veikbyggða
manns — í fínlegum andlits-
dráttum hans, sem gefa upp-
lýsingar um viðkvæma lund,
enda kennir hann jafnan tauga-
óstyrks, er hann á að koma op-
inberlega fram.
Orðræða Shostakovitch er
óróleg og stundum stamandi.
Eitt af höfuðeinkennum hans er
hin einstaka samvizkusemi í öllu
því, er hann tekur sér fyrir.
Þegar slökkvisveit hljómlistar-
skólans tók til starfa, en í henni
er tónskáldið virkur liðsmaður,
hafnaði hann sérstökum undan-
þágum, sem honum stóðu til
boða, en hlýddi skilyrðislaust
öllum fyrirmælum.
Foreldrar Shostakovitch voru
miklir tónlistarunnendur, eink-
um móðir hans. „Það var hrein-
asta tilviljun, að ég gerðist tón-
listarmaður,“ segir tónskáldið
um sjálfan sig, „ef áhrifa móð-
ur minnar hefði ekki gætt,
mundi ég aldrei hafa orðið tón-
skáld. Við áttum bæði sam-
merkt í því, að við settumst,
bæði við píanóið á níu ára aldri.“
Frá fyrstu kennslustund
sýndi Dmitri sérlega trútt tón-
listarminni og óvenjulega mikla
hæfileika í nótnalestri. Fáeinum
mánuðum eftir fyrstu stundina
gat hann með öryggi leikið
Haydn og Mozart.
Árið 1919 kom nefnd læri-
sveina til skólastjóra hljómlist-
arskólans í Petrograd og fór
þess á leit, að sérstakur styrkur
skyldi veittur ákveðnum ungum
lærisveini í viðurkenningarskyni
fyrir augsýnilega hæfileika..
Skólastjórinn svaraði: „Náms-
styrkir eru ekki ætlaðir 13 ára
gömlum unglingum, en hér er
um að ræða undantekningu.
Gáfur piltsins eru furðulegar,
sambærilegar við náðargjöf
Mozarts. Hér er falin framtíð
tónlistar vorrar.“ Nemandi sá,
sem hér átti hlut að máli, var
Dmitri Shostakovitch.
Meðan Shostakovitch stund-
aði nám sitt á hljómlistarskól-
anum, sótti hann reglulega sym-
fóníuhljómleika og óperusýn-