Úrval - 01.12.1942, Qupperneq 15
EF NAPÓLEON . . .
13
bregðast skyldu okkar. Þið haf-
ið löngum lagt það í vana ykk-
ar, að rugla saman stjórnmál-
um og siðfræði. Það hefir kom-
ið að góðu haldi til þessa í bar-
áttu ykkar við þá, sem ekki
gerðu sér ljóst, að þið kunnuð
skil á hvorugu, en létuð stjórn-
ast af einskærri tilfinningasemi,
þeirri sömu tilfinningasemi, er
ræður því, að þið getið ekki hætt
að líta á kænan en karlægan
indverskan lögfræðing sem ein-
hvers konar dýrðling. Með því
móti fáið þið honum í hendur
mál, sem alla lögfræðinga
dreymir um, mál sem aldrei
verður útkljáð, aldrei leysist.
Hættið þessum málaflækjum og
farið að snúa ykkur að stríð-
inu. Indland mun ekki hverfa af
landabréfinu. Það mun verða á
sínum stað eftir að stríðið er
um garð gengið. „Reculez pour
mieux sauter.“ (Látið undan
síga til að geta stokkið betur.)
Dreyfið ekki kröftunum, ein-
beitið þeim. Lofið kjánalegum
stúdentum og illgjörnum götu-
strákum að ræna og brenna.
Þeir munu ekki gera hinum
raunverulegu auðæfum Indlands
neitt mein. Takið Berlín og það-
an getið þið farið með hvaða
skipi sem er til Kalkútta og
Delhi, samkvæmt ósk Indverja
sjálfra, til að koma í veg fyrir
að meira blóð drjúpi af kutum
fjallabúanna og til að frelsa
þjóðina frá innrás og stjórn-
leysi. Þér segið, að þið þorið
ekki að missa Indland og það
meira að segja, þegar það eitt
getur ef til vill bjargað ykkur,
að þið látið það af hendi af
frjálsum vilja. Hvar er hinn
mikli sigur ykkar yfir Þýzka-
landi, hinum eina fjandmanni
ykkar, þó að þið haldið því? Ég
er að tala um stríð, ekki tilfinn-
ingar eða álit og virðingu. Hvort
sem þið þorið eða ekki, þá mun-
uð þið tapa Indlandi og stríðinu,
ef þið bíðið ósigur við Níl. Þá
munuð þið ekki geta byrjað á
nýjan leik og herir ykkar í Ind-
iandi munu vera líkt og nöguð
bein.
Þó að þið séuð ekki fáanlegir
til að læra styrjaldarlistina til
hlítar, viljið þið þá ekki reikna,
því að stríð er að hálfu leyti
ekkert nema einfaldur reikn-
ingur. Þið getið ekki einu sinni
talið, hversu mörgum vígstöðv-
um þið berjist á, og búið svo af
ásettu ráði til sjöttu vígstöðv-
arnar, vígstöðvar uppreista og
svika að baki þeirra vígstöðva,
sem þið segið að allt velti á. Ef