Úrval - 01.12.1942, Síða 59
BLINDUR FÆR SÝN
57
hefir þróazt fram; þess vegna
færi ég og skoðaði söfnin. Þar
sæi ég samanþjappaða sögu
jarðarinnar — myndir manna
og dýra í eðlilegu umhverfi;
risavaxin líkön fornaldar-
skrímsla, er lifðu á jörðinni
löngu áður en maðurinn varð
til, hinn smávaxni, vitiborni
maður, sem að lokum hrósaði
sigri yfir dýraríkinu.
Næst myndi leiðin liggja til
listasafnsins. Ég þekki vel af
snertingu líkneski af guðum og
gyðjum Forn-Egypta. Ég hefi
þreifað á eftirlíkingum frægra
lágmynda og skynjað fegurð
grískra listaverka. Mér þykir
vænt um skeggjað andlit Hóm-
ers, því að hann þekkti líka
hvað það er, að vera blindur.
Þannig myndi ég verja öðr-
um deginum til þess að skyggn-
ast inn í sál mannsins, gegnum
listaverk hans. Það, sem ég
þekkti áður af snertingu, myndi
ég nú sjá. Þó væri hitt enn dá-
samlegra, að allur hinn stór-
fenglegi heimur málaralistar-
innar stæði mér nú opinn. Ég
yrði þó aðeins fyrir yfirborðs-
legum áhrifum. Listamenn segja
mér, að til þess að unnt sé að
skilja list til hlítar, verði að
þjálfa augun. Reynslan verður
að kenna manni að meta gildi
lína, stíls, forms og lita. Ef ég
hefði sjón, teldi ég mig sæla að
að mega fást við svo töfrandi
viðfangsefni.
Kvöldi hins annars dags
myndi ég verja til þess að sækja
leikhús eða kvikmyndasýning-
ar. En hve mér þætti gaman að
horfa á hrífandi persónu Ham-
lets, og sjá Falstaff hinn ofsa-
fengna! Ég fæ ekki notið þeirr-
ar fegurðar, sem fólgin er í
háttbundnum hreyfingum, nema
þær, sem hendur mínar ná til
að þreifa á. Ég á bágt með að
gera mér grein fyrir yndisleik
dansmeyjar eins og Pavlowu,
enda þótt ég þekki dálítið til
dásemda hrynjandinnar, því að
ég skynja oft hljóðfall, sem
berst eftir gólfi, ef leikið er á
hljóðfæri. Ég get hugsað mér,
að mjúk, háttbundin hreyfing
sé eitt hið yndislegasta, sem
auðið er að sjá. Ég hefi kynnzt
þessu nokkuð, með því að þreifa
á höggmyndum; og úr því að
mér finnst þessi steingerði ynd-
isþokki svo unaðslegur, hversu
mjög yrði ég ekki hrifin, ef ég
sæi hann gæddan lífi og hreyf-
ingu!
Morguninn eftir myndi ég enn
heilsa döguninni, áköf í að upp-
8