Úrval - 01.12.1942, Side 72
70
tJKVAL
um helmingur alls þess liðs, er
þeir höfðu á eynni, en í undan-
haldinu frá Dunkirk nam mann-
tjón þeirra aðeins um tólf af
hundraði, og þegar liðið var
flutt frá Grikklandi, kom um
fjórði hver maður ekki til skila.
Bretar misstu líka tólf sinnum
meira skipsrúm við Krít en við
Grikkland, og meðal skipa
þeirra, sem þeir misstu, voru
fjögur beitiskip og sex tundur-
spillar.
Bretar höfðu lítt búizt til
varnar á eynni. Aðeins þrír her-
flokkar (um 2400 menn) voru
í öndverðu hafðir þar. Bretar
gátu ekki séð af loftvarnabyss-
um til að verja hina þrjá litlu
flugvelli, sem þar voru, né flug-
vélum til að hafa bækistöð þar,
svo að það hlaut aðeins að flýta
fyrir landsetningu á liði óvin-
anna, að ryðja þar fleiri flug-
velli.
Þegar liðið var flutt frá
Grikklandi, voru um 32.000 her-
menn fluttir til Krítar. Vörnin
var vonlaus frá öndverðu og
hún var falin Bernard Cyril
Freyberg hershöfðingja, sem
gat sér góðan orðstír í heims-
styrjöldinni fyrri og var gerður
að hershöfðingja 27 ára gamall.
Var hann yngsti maður, sem
hlotið hafði þessa tign í brezka
hernum.
Menn Freybergs höfðu engin
þung vopn, aðeins nokkra létta
skriðdreka og örfáar 75 mm.
fallbyssur, sem höfðu verið
teknar herfangi af Itölum. Fjög-
ur hundruð mannanna höfðu
enga riffla, fyrr en tvo eða þrjá
síðustu dagana.
Þegar orustan um Krít var
háð, hafði brezki flugherinn í
löndunum við austanvert Mið-
jarðarhaf aðeins um fimmtíu
nothæfum orustuflugvélum á að
skipa. Daginn, sem innrásin
hófst, var ekki ein einasta brezk
flugvél á flugvöllum eyjunnar
til þess að taka á móti flugvél-
um Þjóðverja. Þær mundu líka
hafa verið til lítils gagns án
verndar loftvarnabyssna. Með-
an barizt var á eynni, voru flug-
vélar sendar frá Egyptalandi,
sem var næsta bækistöð, til þess
að vernda brottflutningana.
Þegar þær komu yfir eyna,
höfðu þær benzín til þess að
berjast í tíu mínútur. Flug-
mennirnir höfðu skipanir um að
hyggja ekkert til heimferðar,
en berjast unz eldsneyti vélanna
væri þrotið og bjargast þá í
fallhlífum. Margir voru teknir
til fanga, en þeir, sem heppnari