Úrval - 01.12.1942, Síða 73
DUNKIRK MIÐJARÐARHAFSINS
71.
voru, gátu lent flugvélum sín-
um á sjónum hjá herskipunum,
sem tóku þá um borð.
Innrás Þjóðverja hófst með
leifturárás að morgni hins 20.
maí. Snemma morguns fyllti
mikill gnýr loftið og fór hann
jafnt og þétt vaxandi. Það var
þýzki loftflotinn, sem var á leið-
inni, og deplarnir, sem fyrst sá-
ust, fóru óðum stækkandi. Flug-
vélarnar lækkuðu flugiðí skyndi,
því að þær gerðu ekki ráð fyrir
því, að mikið yrði um varnir. Þær
sprengjuflugvélanna, sem komu
fyrstar — Dornier- og Heinkel-
vélar — slepptu sprengjunum í
um það bil 2000 feta hæð. Á
hæla þeim komu svo steypiflug-
vélar, sem fóru enn nær jörðu,
til að skila því, sem þær höfðu
meðferðis. Loks kom hver hóp-
urinn á fætur öðrum af Messer-
schmitt-vélum, sem nærri struk-
ust við ólífutrén og húsin, og
þær skutu á allt kvikt, er á vegi
þeirra varð.
Þannig gekk þetta hvað eftir
annað. Fyrst komu sprengju-
flugvélar, þá steypiflugvélar og
loks orustuflugvélar. Hermenn
bandamanna kúrðu sig niður,
því að þeir gátu ekkert annað.
Þessar árásir stóðu í klukku-
stund. Þá varð hlé á. Loftið fyllt-
ist hávaða í annarri tóntegund
— hryssingslegu skrölti í stóru
flutningaflugvélum. Junkers og
Focke Wulf-vélar fóru yfir í
nokkur hundruð feta hæð,
hurðir þeirra voru opnaðar og
farmur þeirra „flaut“ útbyrðis.
Úr hverri flugvél komu um 30
fallhlífahermenn, er notuðu fall-
hlífar, sem opnast skjótt og
létu þá svífa hratt til jarðar,
svo að þeir voru aðeins um 25
sekúndur á leiðinni niður. Á
eftir komu svo aðrar flugvélar,
sem vörpuðu útbyrðis fallhlíf-
um með alls konar birgðum og
nauðsynjum.
Á eftir flutningaflugvélunum
komu stórar, svartar svifflugur,
sem höfðu verið dregnar aftan
í vélflugum mestan hluta leiðar-
innar. Sumar þeirra gátu lent
á sjó og voru þær útbúnar með
litlum utanborðsmótorum, svo
að þær gátu náð landi hjálpar-
laust. Aðrar voru ætlaðar til að
lenda á landi og settust þær
ýmist á fjörurnar eða uppi til
dala.
Hersveitirnar á eynni voru
viðbúnar að taka á móti þess-
um innrásarsveitum. Hjá Kanea,
stærstu borg eyjunnar, komu um
3000 fallhlífahermenn niður á
fáeinum mínútum. Næstum því;