Úrval - 01.12.1942, Qupperneq 97
KENNSLA HELDUR ÁFRAM
95
forláta gripur og árangur
margra ára tilrauna við háskól-
ann í Nanking. Þegar varð að
yfirgefa skólann, áleit kennar-
inn kúna of mikils virði til þess
að hún yrði skilin eftir. Hann
fékk því hjólbörur að láni, fyllti
þær af heyi og lagði leið sína
til Chungking, 1600 km. langan
veg, til hinna nýju húsakynna
skólans.
Vísindadeild háskólans í
Chungking stóð í fjallshlíð. Dag
þann, er ég kom til borgarinn-
ar, sást allt í einu til ferðar
flugsveitar hátt í lofti, og lét
hún sprengjum rigna niður.
Hávaðinn var óskaplegur, og
huldist vísindadeildin brátt
dökkum, óhugnanlegum mekki.
Byggingin, sem byggð var fyrir
samskotafé amerískra stúdenta,
var komin í rúst.
Björgunarsveitin lét hendur
standa fram úr ermum. Það
kom í Ijós, að 19 nemendur
höfðu látið lífið. En af rústum
hinnar veglegu byggingar til-
kynnti virðulegur, gráhærður
háskólakennari: „Kennsla hsld-
ur áfram á morgun.“
í Kweiyang kynntist ég hr.
Chou. Stóð hann fyrir hópi 60
stúdenta, sem sex sinnum höfðu
orðið að flytja búferlum og voru
nú enn að búast til brottferðar.
Bróðir hans, sem verið hafði í
hernum, var fallinn. Óvinirnir
höfðu brotizt inn í skóla, sem
systir hans veitti forstöðu, og
sá hún þann kost vænstan, að
fleygja sér út um glugga. Var
það hennar bani.
Ég fór með honum í svefn-
skála piltanna, sem herinn hafði
áður haft til afnota. Skálinn var
byggður úr bambus og torfi og
lágu þar piltarnir hver um ann-
an þveran. Draugalega glætu
lagði frá grútartýrunni og upp-
hitun var engin, þrátt fyrir það,
að miðsvetrarnæðingurinn átti
greiðan gang inn í hinn hrörlega
kofa. Á veggnum var kort yfir
Isham-skólann, sem nýlega
hafði orðið fyrir loftárás. Á
kortinu voru nákvæmar teikn-
ingar af kennslustofum, svefn-
skálum og loftvarnabyrgjum.
Á því voru 122 merki, sem
sýndu, hvar sprengjur höfðu
komið niður. Kortið var notað
við kennslu í eðlisfræði, til þess
að reikna út hæð, hraða og
stefnu flugvélanna.
Ég át kvöldverð með stúdent-
unum í opnum hjalli. Á borðum
var súpa, með örlitlu af káli og
hrísgrjónum — það var allt og
sumt. Piltar og stúlkur nutu