Úrval - 01.12.1942, Blaðsíða 131
BRÉF FRÁ LESENDUM.
Kynferðisnaálin í þýzkri
þjónustu.
G. S. frá Reykjavík skrifar:
.. . Ég þakka annað hefti af
Úrvali, sem er sínu betra en hið
fyrra. Þó er þar ein undantekn-
ing: „Kynferðismálin í þýzkri
þjónustu“. Það er áróðursgrein
af því tagi, sem tírval ætti aldrei
að láta sig henda að birta. Stofn-
unin „Rassenpolitisches Amt" og
málgagn hennar „Rasse“ eru
ekki ný af nálinni, ég sá oft
tímaritið „Rasse" þegar ég var
í Þýzkalandi fyrir strið og mér
er kunnugt um, að hinum of-
stækisfullu kenningum þess var
lítill gaumur gefinn og áhrif
þess innan flokksins að þvi er
virtist engin. Hins vegar eru þær
DG get ekki stillt mig um að
** skrifa yður nokkrar línur
út af „Úrvali“. Að visu hefi ég
ekki verið áskrifandi þess fyrr en
nú, að ég bið yður að skrifa nafn
mitt og heimilisfang hjá yður og
senda mér næsta hefti. En ég
hefi lesið bæði 1. og 2. hefti —
fékk þau að láni hjá kunningja
mínum — og þykir mér mjög
fyrir þvi, að þau skuli vera upp-
seld. Mér líkar efni ritsins svo
vel, að mér datt í hug, þar sem
vel fallnar til áróðurs ef kæn-
lega er að farið eins og í fyrr-
nefndri grein og hæfilega krydd-
að með viðeigandi „dæmurn"...“
V. H. frá Reykjavík skrifar
um sömu grein: „... Athyglis-
verðasta greinin í heftinu er þó
„Kynferðismálin í þýzkri þjón-
ustu“. Falleg er hún ekki, satt
er það, en ef hún gæti orðið til
að opna augu einhverra fyrir
þvi, sem raunverulega er að ger-
ast á meginlandi Evrópu, þá
hefir Úrval ekki birt hana til
einskis ...“
Fleiri bréf hafa borizt um
þessa grein og virðist, sem hún
hafi vakið mikið umtal og jafn-
vel deilur manna á milli.
tvö fyrstu heftin eru ófáanleg,
hvort ekki sé hægt að bæta nýj-
um kaupendum upp skaðann
með því annað hvort að prenta
heftin upp að nýju eða að láta
beztu greinamar úr þeim, sem
ekki em tímabundnar og hafa
varanlegt gildi, koma eina og
ein í senn í næstu heftum. Með
hinu síðarnefnda er okkur, nýju
áskrifendunum, að nokkru bætt-
ur upp sá skaði að geta ekki
fengið tvö fyrstu heftin. — J.H."
Sjá kápusíffu 2.