Úrval - 01.10.1943, Blaðsíða 37
MEÐFERÐ TAUGASJtíKLINGA
35
kynferðislíf sitt og hugsanir.
Kynferðisórar eru tíðum orsök
séktarvitundar.
Allt sem hér hefir verið sagfc
að framan á jafnt við, þótt
taugasjúklingurimi sé gift kona
eða kvæntur maður. Hann
þarfnast hjálpar hver sem hann
er, hvort sem hann er giftur
eða ógiftur, og hvernig sem
fjárhag hans eða stöðu í lífinu
er háttað.
Og gleymið umfram allt ekki
þeirri meginreglu, að enginn
vill vera veikur, og að náttúran
(í þessu tilfelli hugurixm) reyn-
ir alltaf að laga sig eftir kring-
umstæðunum og öðlast heil-
brigði á ný.
Gerið því allt, sem þér getið
til þess að hjálpa honum — sem
þráir svo mjög að gera hið
rétta, en getur það ekki — til
að komast á réttan kjöl.
(íuösorö prestsins.
Presturinn var að semja ræðu og litla dóttir hans var að horfa
á hann.
„Pabbi," sagði hún, „segir guð þér, hvað þú átt að skrifa?“
„Já, auðvitað, barnið mitt,“ anzaði prestur. „Hvers vegna
spyrðu?"
„Af hverju strikarðu þá sumt út af þvi aftur?“ spurði dóttirin.
— World Digest.
Keðjubréf. *
Kæri vinur — þetta keðjubréf hóf göngu sína í Reno í þeirri
von, að það gæti flutt þreyttum eiginmönnum nokkra rauna-
bót. Það er ólíkt öðrum keðjubréfum að því leyti, að það kostar
engin fjárútlát. Þú þarft ekki annað en senda afrit af því til
fimm kunningja þinna (karla en ekki kvenna), pakka síðan
konunni þinni inn og senda hana til mannsins, sem er efstur
á listanum. Þegar nafn þitt er komið efst á listann, færð þú
i staðinn 15.176 fallegar blómarósir. Vertu vongóður. En í öllum
bænum rjúfðu ekki keðjuna. Maður nokkur rauf keðjuna og —
fékk konuna sína aftur.
— American Army and Navy Journal.