Úrval - 01.10.1943, Page 102
100
ÚRVAL
eins og öldungaráðsmaður, og
beitti mikið flötum afturfótun-
um. Eftir vetrardvalann hékk
húðin í fellingum á hálsi hans
og fótleggjum, grátt, gamalt og
dautt leður, — en látið þið
ykkur ekki koma til hugar, að
hann hafi kippt sér upp við það,
þó að hann væri eins og leik-
húsflón á að líta! Ekki aldeilis,
hann Akkilles! Hann gerði sér
hins vegar far um það, beinlínis,
að sýna sig: stóð á tánum til
þess að láta ljós og loft leika
um sig, inn undir skelinni. Hann
teygði úr öllum skönkum og
skók sig, og gerði allt, sem hann
gat sjálfur gert til þess að
snurfusa sig sem bezt, og hann
reyndi jafnvel að hoppa upp af
gólfinu. f stuttu máli; hann lék
á als oddi. Og þegar ég tók hann
upp, til þess að klóra honum á
hálsinum, eða þreifaði undir
skelina og kitlaði hann í arm-
krikanum, dillaði hann rófunni
og löppunum, en annars dró úr
honum allan mátt af unaðinum,
sem þessi vinahót mín veittu
honum. Og ekki var trútt um að
mér sýndist vera kýmniglott í
augum hans, — ég held, að ekki
hafi verið hægt að nefna það
annað.
Á vorin var það hans mesta
yndi, að fá góðan mat. Hann
var tjóðraður á grasflötinni
fyrir framan húsið okkar
með streng, sem dreginn var í
gegnum gat, er ég hafði borað á
skelbrynjuna hans, framanvert.
Og svo át hann gras eins og
hross, reif upp vænar tuggur,
með því að. kippa hausnum til
hliðar á víxl, rétti síðan úr
hrukkóttum hálsinum, og tugði
og saug grasið, en ánægja og
unaður glampaði í augum hans.
Á einum eftirmiðdegi gat hann
snöggbitið tíu ferfeta blett, sem
var þá eins hreinlega frágengið,
og hann hefði verið klipptur
með grasklippum. Vatn drakk
hann eins og teprulegasta hæna,
deif snjáldrinu í vatnið, en
lyfti síðan hálsi og haus hátt í
loft upp, til þess að láta það
renna ofan í sig, — en glotti um
leið sínu kýmnilega glotti til
áhorfenda, ef einhverjir voru.
Fóðrið, sem hann fékk, var
haft all breytilegt, og enginn,
sem þekkti nokkuð til hans„
vildi verða af þeirri skemmtun
að gefa honum eitthvað að éta,
sem honum geðjaðist að. Eink-
um þótti honum allskonar græn-
meti gott, svo sem blómkái og
ýmiskonar baunir, og ef mér
hefði haldist lengur á honum en