Úrval - 01.04.1946, Blaðsíða 26
24
ÚRVAL
imar eru af. Myndimar eru
sem sagt alveg eins og raun-
veruleikinn sjálfur, dýpt og
fjarvídd landslagsmyndar sú
sama og ef horft væri á lands-
lagið sjálft.
En það er erfiðara að varpa
stereóskópiskri mynd á kvik-
myndatjald svo að liægt sé að
njóta hennar alls staðar frá
áhorfendasvæðinu.
Aðferðirnar, sem reyndar
hafaverið eru aðallega þrjár. Sú
fyrsta er raunverulega hin sama
og nú er notuð við stereóskóp-
iskar ljósmyndir. Tveim kvik-
myndum er varpað á tjald hlið
við hlið, og sýnir önnur rnynda-
efnið frá sjónarstað hægra aug-
ans, en hin frá sjónarstað
vinstra augans. Þessar tvær
myndir eru svo skoðaðar gegn
um stereóskóp.
Sem tilraun er þessi aðferð
mjög athyglisverð, en hún mun
þó naumast reynast hagnýt í
framkvæmd, því að auk þess
sem allir áhorfendurnir þurfa
að nota stereóskóp, er aðeins
hægt að horfa á myndina frá
takmörkuðu svæði í áhorfenda-
salnum.
Allvíðtækar tilraunir hafa
verið gerðar með aðra aðferð-
ina. Hún er í því fólgin, að á-
horfendumir horfa á myndina
í gegn um gleraugu, og er annað
glerið rautt en hitt græat,
venjulega bæði úr celluloid. Á
tjaldið er varpað tveim mynd-
um, sams konar eins og í fyrri
aðferðinni, að öðru leyti en þvl,
að önnur er græn en hin rauð
og að þeim er varpað hvorri of-
an í aðra, en ekki hlið við hlið.
Afleiðingin verður sú að augað
með græna glerinu fyrir, sér
aðeins rauðu myndina, en aug-
að með rauða glerinu sér aðeins
grænu myndina. Áhrifin verða
þannig fulikomlega stereóskóp-
isk. Gallinn á þessari aðferð er
hins vegar sá, auk óþægindanna
af því að nota gleraugu, að
myndirnar verða mjög ljósdauf-
ar, eins og í hálfrökkri.
Pleiri afbrigði hafa verið
reynd af þessari aðferð. Eitt er
t. d. þannig, að myndum hægra
og vinstra auga er varpað á
sama tjaldflötinn til skiptis, en
áhorfandinn notar gleraugu,
sem eru þannig útbiiin, að litlar
lokur smella fyrir augun til
skiptis þannig, að þegar mynd
hægra auga er varpað á tjaldið,
smellur lokan fyrir vinstra aug-
að og svo öfugt.
Ef þessi aðferð yrði almeimt
tekin í notkun, yrði kvikmynda-