Úrval - 01.04.1946, Page 49
DÝRLINGURINN OG NÁTTtfRUBARNEÐ
4T
hafði verið veitt af páfanum,
tók hann á móti henni í regluna.
Hann fann skjól handa henni í
nuimuklaustri heilags Bene-
dikts, og þegar systir hennar og
brátt fleiri konur og stúlkur
fylgdu dæmi hennar var stofnuð
systraregla „fátækrar Klöru“ í
anda hinna „fátæku bræðra frá
Assisi."
Á þessum tíma hafði hinmn
„fátæku bræðrum" farið fjölg-
andi. Nokkrir hinna endur-
fæddu kröfðust nú hagsýnni líf-
ernishátta. Hvers vegna urðu
þeir að flækjast um á vegum úti
og koma frarn í borgunum eins
og trúðleikarar ? Hvers vegna
urðu þeir að lifa í kof ahreysum ?
Hvers vegna máttu þeir ekki
taka við fé til mannúðarstarfa,
og hvers vegna máttu þeir ekki
taka prestvígslu? Hvers vegna
máttu þeir ekki fá reglu, ein-
hver lög til að breyta eftir og
formlega skipulagsskrá fyrir
félagsskapinn ? Þeir héldu því
fram, að Franz væri of barns-
lega saklaus til að geta stjórn-
að reglunni einn.
Kirkjan var heldur ekki á-
nægð með þetta eins og það var.
Franziskanarnir voru nú orðnir
1200, á morgun gætu þeir verið
orðnir 12000. Eina leiðin til að
útiloka hina óverðugu var að
skipuleggja þá samkvæmt
þrautreyndum starfsleiðum
munkareglna. Jafnvel Franz
fann, að eitthvað þurfti að gera.
Margir, sem hann varla hafði
séð, höfðu kallað sjálfa sig
Franziskana; innræti þeirra gat
hann ekki kynnzt og gjörðum
þeirra fékk hann ekki stjómað.
Það var því ekkert annað að
gera en að biðja páfann að gefa
þeim lög og skipa opinberan
stjórnanda.
Þegar Franz ákvað að láta
undan, gerði hann það eins blíð-
lega og fullkomlega eins og
elskulegt barn. Hann lét kirkj-
una skipuleggja reglu sína og
dró sig í hlé. Um leið og hann
tók bróður Pietro sér við hönd,
útnefndi Franz hann sem föður
reglunnar. „Heilsa mín leyfir
mér ekki að gæta ykkar sem
skyldi,“ sagði hann.
í sannleika var hann þreyttur.
Líkami hans var slitinn af
stöðugri sjálfsafneitun og fá-
tækt. Hræðilegur sjúkdómur
hafði gripið hann og einkenni-
leg sár höfðu myndast á hönd-
um hans og fótum. Þau litu út
sem naglar hefðu verið reknir
í gegnum útlimi hans — „smán-
armörkin eða merki krossfest-