Úrval - 01.04.1946, Side 86
84
ÚRVAL
meðan ég hefi landkrabhana og
hnetumar skal ég ekki svelta,
og á meðan ætla ég að vinna
duglega við „ritstörfin."
Þegar ég fór úr bílnum
heima hjá mér fékk ökumaður-
inn mér kassa. „Yður skjátlast
sagði ég, „ég á þetta ekki.“
Hann skýrði þá fyrir mér ao
Kínverji nokkur hefði borgað
undir það hingað. Er ég horfði
á lokið sá ég blýantskrifað
spjald: „Mr. Hall, til yðar. Lee
Fat.“ í kassanum voru tvö
pund af súkkulaði, nokkrar
litchi-knetur, pottflaska af
kampavíni, tveir silkivasaklút-
ar og ein siikináttföt. Ég sökkti
kampavínsflöskunni niður í
vatnsgeyminn, til að halda
henni kaldri og fór því næst að
gæta að hænunni minni. Hún
hafði losað sig, og eftir nokkra
Ieit fann ég hana undir tröppun-
um, þar sem hún hafði orpið
eggi og iá á því. Þetta egg var
ófrjótt, svo að ég tók það, bjó
henni dúnmjúkt hreiður og setti
í það þau fimm egg, sem voru
eftir af gjöf Hop Sing. Hæn-
an settist á þau og gaggaði
ánægjulega.
Ég lifði á kröbbum og mapé-
hnetum. Ég hafði verið mjög
horaður, sem stafaði af áhyggj-
um og mínu daglega fæði, sem
var dósakjöt og kartöflur, en
áður en sex vikur voru liðnar
hafði ég þjmgst um 14 pund.
Iiænan ungaði út fimm ungum.
1 önnum mínum við krabba- og
hænsnabúskapinn og ritstörfin,
hafði ég gleymt kampavíninu,
en dag nokkum, þegar lands-
drottni mínum og nokkrum
af börnum hans, varð gengið tii
mín, drukkum við saman úr
flöskunni, en börnunum gaf ég
súkkulaðið frá Lee Fat. Næsta
morgun fann ég á svölunum
kippu af banönum og poka með
appelsínum og mangó-ávöxtum.
Síðan vantaði mig hvorki ávexti
né fisk frá jarðeigandanum og
konu hans. Mér voru veittar alls
konar velgerðir og ég minntist
með mikilli hlýju, að þetta allt
ætti ég að þakka Hop Sing.
Garðurinn hans varð nú æ
blómlegri og gaf vonir um ríku-
lega uppskeru fyrir hina þolin-
móðu natni hans. Hop Sing var
engu síðri bakari en garðyrkju-
maður og fjórum sirmum í viku
setti hann við hliðið hjá mér
stökkan brauðhleif eða ananas-
tertu.
Það var sama hvað ég sagðí
eða gerði, ekkert gat upp-
rætt þakklátsemi hans fyrir