Úrval - 01.04.1946, Side 130
128
tJRVAL
eigin atvinnubótakerfi. Bág-
staddir Mormónar eru látnir
plægja og sá, byggja kapellm-
og skóla, sjóða niður ávexti og
grænmeti, sauma föt og gera
við skó. Fyrir þessa vinnu fær
hver þeirra ávísun á fæði, föt,
eldivið og húsnæði.
Aðrir eru beðnir að neita sér
um tvær máltíðir á mánuði og
gefa kirkjunni andvirðið. Grant
forseti viðurkennir, að þessar
ráðstafanir hafi ekki að fullu
komið í veg fyrir skráningu
Mormóna á almennt sveitar-
framfæri. Margir vilja heldur
leita til stjórnarinnar en kirkj-
unnar. En hann bendir á, að hið
minnsta sem hann geti gert, sé
að hvetja Mormóna til þess að
gjalda atvinnuleysistyrkinn með
heiðarlegum dagsverkum.
Kirkjan hefir haft samvinnu
við stjórnina í því að hindra
uppblástur í Tooeledalnum og
gera hann aftur að grösugu
landi. En Grant forseti er mjög
andstæður New Deal stefnu
Roosevelts. Hann finnur að
New Deal vegur á móti áhrifum
kirkjunnar og að þegnamir taka
að líta til Washington eftir
stuðningi í stað Musterisins.
En ríkisfjármagnið heldur
stöðugt áfram að streyma inn,
ýmist sem styrkur eða lán til
verklegra framkvæmda. Mor-
mónaríkið, sem var einu sinni
óháð og sjálfu sér nóg, á nú að
glíma við sömu jarðyrkju- og
iðnaðarvandamál og nágrannar
þess. Á bernskudögum kirkj-
unnar var hún út af fyrir sig,
umsetin af spotti og ofsóknum.
Mormónar voru sameignarmenn,
undir stjórn einvaldsherra.
Nú eru Mormónar aðeins
venjulegur sértrúarflokkur með
atvinnurekstur, sem er háður
hagkerfi Bandaríkjanna.
UEVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gísli Ólafsson, afgreiðsla Tjamargötu 4, Pósthólf 365. —
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, eru beðnir að snúa sér til afgreiðsl-
imnar. Ætlazt er til, að hvert hefti sé greitt við móttöku. Á hinn
bóginn fylgja áskriftinni engar skuldbindingar um að kaupa tímaritið
fyrirfram ákveðinn tíma, en með því að gerast áskrifandi tryggið þér
yður að fá tímaritið sent til yðar undir eins og það kemur út. TJrval
er sent til allra bóksala á landinu og getur hver og einn gerzt áskrif-
andi hjá næsta bóksala.
ÚTGEFANDI: STEINDÖP.SPRENT PI.F.