Úrval - 01.08.1946, Blaðsíða 130
Margir eiga frá beraskn- eða
æskuárum sinum —
Lœrdómsríkar endurminningar.
Úr „Reader’s Digest.“
Samviima.
Tveir bræður mínir áttu í
sameiningu lítinn vagn, sem þeir
rifust oft útaf, af því að báðir
vildu hafa hann. Foreidrar mínir
höfðu ekki efni á að kaupa
annan vagn, og faðir minn úr-
skurðaði þvi eitt kvöld, að þeir
skyldu hafa hann sína vikuna
hvor, en sá þeirra sem hefði
vagninn ætti jafnframt að sjá
um að eldiviðarkassinn væri
fullur. Sá þeirra, sem ekki hafði
vagninn, var því laus við að
sækja eldivið þá vikuna.
Bræðrum mínum fannst þetta
í fyrstu góð lausn á málinu. En
þeir uppgötvuðu brátt að það er
ekkert meira gaman að leika sér
einn heldur en að vinna einn.
Brátt fóru þeir að lána hvor
öðrum vagninn til þess að fá
hjálp við að bera inn eldiviðinn.
Þeir hættu að rífast um vagninn
og sá samvinnuandi sem þeir
lærðu á þennan hátt hefir fylgt
þeim æ síðan.
— Lucile Sebeson.
Dans er ágæt æfing fyrir stúlkur;
ftann er fyrsta æfingin í því að geta
sér til, hvað karlmaður ætlar að gera
áður en hann gerir það.
— Christopher Morley.
URVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gisli Ólafsson, afgreiðsla Tjamargötu 4, Pósthólf 365. —
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, eru beðnir að snúa sér til afgreiðsl-
unnar. Ætlazt er til, að hvert hefti sé greitt við móttöku. Á hinn
bóginn fylgja áskriftinni engar skuldbindingar um að kaupa tímaritið
fyrirfram ákveðinn tíma, en með því að gerast áskrifandi tryggið þér
yður að fá tímaritið sent til yðar undir eins og það kemur út. TJrval
er sent til allra bóksala á landinu og getur hver og einn gerzt áskrif-
andi hjá næsta bóksala.
ÚTGEPANDI : STEINDÓRSPRENT H.F.