Úrval - 01.08.1946, Blaðsíða 11
PERÖN, I-IINN NÝI EINRÆÐISHERRA
9
Perón fæddist fyrir fimratíu
árum á nautgripabúgarði föður
síns, sem var jarðfræðingur og
landnámsmaður á hinni hrjóstr-
ugu og kuldalegu Patagoníu-
sléttu. Á æskuárum sínum barð-
ist hann við Indíánadrengi,
tamdi villta hesta, og snaraði
strúta og önnur villt dýr. Hann
óð beljandi ár í frosti, og hljóp
svo á móti vindinum þangað til
reiðbuxurnar hans voru orðnar
gaddaðar. Sextán ára var hann
sendur í herskóla; þótti hann
kærulaus við námið, en hraust-
ur hermaður.
Meðan hann var undirforingi
var honum stefnt fyrir herrétt
fyrir gagnrýni á stjórn hersins
og ofbeldislega framkomu. I
sextán ár var hann meistari í
skylmingum í hernum, og víst
er að hann myndi hafa orðið að
heyja mörg einvígi við félaga
sína, ef þeim hefði þótt hann
árennilegur. Tuttugu ára varð
hann liðsforingi og í tíu ár varð
hann að starfa í ýmsum af-
skekktum herbækistöðvum víða
um land. Eftir það fékk hann
inngöngu í háskóla hersins. Árið
1929 var hann gerður að höf uðs-
manni við herforingjaráðið.
Perón var gerður að aðstoðar-
hermálaráðherra í ráðuneyti
Uriburu árið 1930 — og sama
embættið fékk hann þegar G. O.
U. félagið hans komst til valda
þrettán árum síðar, með að
heita mátti nákvæmlega sams-
konar byltingu. Þegar G. O. U.
tók völdin 1943, átti Argentína
á að skipa 50000 manna her,
stórum en gamaldags flota, og
flugher með 50 fyrsta flokks
flugvélum. Hernaðarútgjöldin
voru það ár aðeins 260 000 000
pesos. Árið 1945 námu þau
2 000 000 000 pesos, sem hækk-
uðu ríkisútgjöldin úr 1 525 000
000 í 3 550 000 000 pesos.
Snemma á árinu 1945 var her-
inn orðinn 100 000 manns, og
120 verksmiðjur framleiða nú
vopn í landinu.
Ofurstinn lifir starfsörnu lífi.
Hann fer á fætur klukkan sex
á morgnana, iðkar líkamsæfing-
ar í hálftíma, og les bréfin og
dagblöðin í bílnum á leiðinni í
ráðuneytið 1 Buenos Aires. Þar
fer hann úr jakkanum og tekur
af sér bindið og vinnur af kappi
til klukkan hálf tvö, veitir
mönnum viðtöl, les fyrir bréf,
athugar skjöl og undirbýr ræð-
ur. Eftir hádegisverð hvílir
hann tíig stutta stund, en vinnur
svo til klukkan níu eða tíu á
kvöldin, og ef hann þarf ekki