Úrval - 01.08.1946, Blaðsíða 18
16
ÚRVAL
skýrðu tilraunamennimir frá
kynlegri vellíðan, blandinni
kæruleysiskennd. Þegar heita
geislanum var beint að þeim,
gerðu þeir sér ljóst, að það væri
sárt, en var að öðru leyti sama
um það.
En þetta var yfirborðssárs-
auki. Gat demerol í raun og veru
jafnast á við hin undraverðu á-
hrif morfínsins á djiiplægar og
eldsárar kvalir mannlegs lík-
ama? Einn morgun rakst dr.
Hiebert á einn samstarfsmann
sinn, þar sem hann lá saman-
hnipraður á gólfinu, örvita af
nýmakvölum. Homrni var gefið
demerol. Eftir nokkrar mínútur
leit maðurinn upp og brosti.
Hann hirti ekki lengur um sárs-
aukann.
öðrum manni, sem var engu
minna kvalinn af gallsteinum,
var gefið demerol. Það var varla
búið að dæla lyfinu í hann, þeg-
ar hann varpaði öndinni létti-
lega, forviða yfir hvarfi sársauk-
ans og sagði: ,,Ég skil ekki,
hvað hefir komið fyrir mig.“
I sjúkrahúsi einu í New York
lá kona, sem hafði legið við
köfnun í fjóra daga, vegna asth-
ma. Henni hafði ekki batnað við
hin venjulegu lyf, og morfín
mátti ekki nota, því að það hefði
lamað andardrátt hennar enn
meir. En þegar demerol var dælt
í hana, varð andardráttur henn-
ar eðlilegur.
Demerol var nú sent læknis-
fræðideildum New York-, Har-
vard- og Wayneháskóla til rann-
sóknar og samanburðar við
morfín sem kvalastillandi lyf,
og voru kerfisbundnar tilraunir
framkvæmdar í Bellevuespítala.
1 marzmánuði 1941 var það gef-
ið öllum sjúklingum, sem mikl-
ar þjáningar höfðu, án tillit til
sjúkdómsins eða þess, hve kval-
imar höfðu staðið lengi. í 85%
af 881 tilfelli, hvarf allur sárs-
auki gersamlega þrem til fjór-
um stundum eftir inngjöfina; í
10% tilfellanna að auki, dró til
muna úr þjáningum. Af 164
sjúklingum með kviðarhols-
skurði, losnuðu 85% við öll ó-
þægindi og óróleika, er þeim
hafði verið gefið demerol.
Kvalastillandi áhrif demerols,
reyndust svipuð og morfíns.
Læknarnir við Bellevuespítala
hafa notað það síðan.
Meðal þeirra tugþúsunda af
sjúklingum, sem gefið hefir ver-
ið demerol í mörgum sjúkrahús-
um, er ekki vitað um eitt ein-
asta tilfelli, þar sem sjúklingur
hefir vanizt á demerolnautn,