Úrval - 01.09.1960, Qupperneq 8

Úrval - 01.09.1960, Qupperneq 8
Bréf frá lesanda Bréf það, er hér fer á eftir, er þess virði að hirt sé, enda þótt það sé nafnlaust. Ábendingar þær, sem nefndar eru, eiga suraar fullan rétt á sér. Annað mál er það, að hægara er um að tala en í að komast, og oft er aðeins um tvo kosti að velja: Að hafna öllu aðsendu efni nema snjall- ir íslenzkumenn og málsmekks hafi um fjallað, eða leiðrétta aðsendar greinar eins og stíla. Þetta ber ekki að skoða sem afsökun, heldur skýr- ingu svo langt sem hún nær. Hitt kynni að vera afsökun að oft og ein- att eru menn ekki á einu máli um orð og orðalag og það þótt ritfærir teljist, og er þá stundum notað eða látið standa ýmislegt, sem mörgum góðum manni kann að finnast með öllu ótækt. Um slíka hluti má enda- laust deila, en óskandi væri að fleiri lesendur Urvals sendu athugasemdir; oftast má af sliku læra. Ritstjóri. Tímaritið URVAL, Rvík. Það er mælst til þess að kaup- endur sendi ritinu skoðanir sínar á ritinu, og skal aðeins ymprað á fá- einum atriðum. Ég hefi keypt Urval frá byrjun cg líkað vel að flestu leyti. M. a. þótti mér málfar þess gott, og flest- ar þýðingar vandaðar. Ritið hefir breytt um svip. Það gef ég ekkert fyrir. Hitt er verra, að málfar ritsins hefir versnað að mun, þýðingar margar óvandaðar. Einkum bar mjög á þessu í 1. og nokkuð í 2. befti. . . .* er mjög illa þýddur, t. d., þetta maður, maður, óvandað. Halda innreið sína í landi er vitanlega skakkt, heldur land, o ,s. frv., o. s. frv, Eða að gefa burt! er ekkert ísl. mál, að ég nú ekki tali um orðið skúrk, sem notað er sem íslenzka. Og orðið orsök er misnotað geypi- lega, t. d. að orsaka hungur, o. fl., o. fl. Auðfundið er að vandvirkni skortir. Smáklausurnar, sem oft voru mjög skemmtilega fyndnar áð- ur, eru að vera skelþunnar eða kjána- legar. Tímaritið var í upphafi hugsað og gefið út fyrir hugsandi læst fólk. Þetta hefir verið þess aðall og styrk- ur og það verður að halda þeirri reisn, ef það vill eiga tvímælalausan tilverurétt. Þetta virðist útgáfustjórnin skilja, sbr. greinina á kápu 4. heftis. Og við það verður að standa. Nú hefi ég ekki um þetta fleiri orð, en mun ekki láta við það sitja ef verulega hallar undan hjá ritinu með efni og málfar. Vonandi kemur það ekki til, enda finnst mér síðari heftin tvö skárri. Vinsamlegast. Vandlátur kaupandi. * Hér er nafn ákveðinnar grein- ar, er birtist í Urvali, en vegna þýð- anda er því sleppt, með því líka að ritstjóri ber alla ábyrgð á lélegu mál- fari og óvönduðum frágangi þótt greinar séu aðfengnar. 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.